30 apríl 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Forseti Alþjóðabankans fundaði með ráðherrum NB8-ríkjanna í Reykjavík
Árlegur ráðherrafundur kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja með forseta Alþjóðabankans, Ajay Banga, var haldinn á Íslandi dagana 29. og 30. apríl. Stuðningur við Úkraínu, enduruppbygging á Gaza og málefni þróunarríkja, einkum atvinnusköpun á grundvelli jafnréttis, grænna orkuskipta og innlendrar tekjuöflunar, voru þar efst á baugi. Þá átti Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, tvíhliða fund með Banga.
Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin mynda kjördæmi innan Alþjóðabankans og deila sæti í stjórn hans. Ríkin eiga víðtækt og náið samráð um stefnumótun bankans og eru árlegir ráðherrafundir með forseta bankans mikilvægur liður í því starfi.
„Alþjóðabankinn er lykilsamstarfsaðili íslenskra stjórnvalda en það hefur sýnt sig að hann hefur einstaka burði til þess að virkja fjármögnun til þróunarríkja og nýtur til þess mikils trausts. Hann hefur jafnframt verið einn af okkar helstu samstarfsaðilum í stuðningi okkar við Úkraínu en stórum hluta af efnahagsstuðningi Íslands við Úkraínu er varið í gegnum sjóði Alþjóðabankans,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.
Forgangsmál Íslands í samstarfi við Alþjóðabankann og hlutverk bankans í núverandi heimsmynd voru meðal umræðuefna á fundi utanríkisráðherra og forseta bankans.
„Á tímum samdráttar í framlögum til þróunarsamvinnu á heimsvísu er hlutverk Alþjóðabankans nú mikilvægara en nokkru sinni fyrr. Við getum verið stolt af því að hafa ekki látið okkar eftir liggja og felst mikill styrkur í samstarfi okkar við bankann og vinaþjóðir okkar innan kjördæmisins,“ segir utanríkisráðherra.
Dagskráin í heimsókn Ajay Banga, forseta Alþjóðabankans, til Íslands hófst í gær með vettvangsferð í Svartsengi og til Grindavíkur þar sem Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var gestgjafi. Banga sótti einnig forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, heim og átti með henni fund.
Um Alþjóðabankann
Alþjóðabankinn er stærsti alþjóðlegi þróunarbankinn á heimsvísu og ein af fjórum áherslustofnunum Íslands á sviði fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu. Meginmarkmið starfsins er að útrýma sárafátækt og stuðla að aukinni hagsæld og velmegun fyrir þau fátækustu. Stjórn bankans samanstendur af fulltrúum 25 kjördæma bankans, þar sem Ísland er hluti af kjördæmi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.
Alþjóðabankinn er lykilsamstarfsaðili íslenskra stjórnvalda hvað varðar efnahagslegan stuðning til úkraínskra stjórnvalda. Ísland hefur jafnframt stutt við innviðasjóð fyrir Palestínu og á öflugt tvíhliða samstarf við bankann á sviði mannréttinda, jafnréttismála, málefna hinsegin fólks, málefna hafsins og endurnýjanlegrar orku.