04 maí 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Styrkir Kvennaathvarfið
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, hafa undirritað samkomulag um 15 milljóna króna styrk til Kvennaathvarfsins.
„Kvennaathvarfið gegnir lykilhlutverki við að tryggja öryggi og stuðning fyrir konur og börn sem þurfa að flýja ofbeldi. Með samkomulaginu styrkjum við áframhaldandi öfluga þjónustu sem brýnt er að sé til staðar,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson.
Kvennaathvarfið býður upp á öruggt skjól, ráðgjöf og stuðning fyrir konur og börn þeirra, sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis. Athvörfin eru staðsett í Reykjavík og á Akureyri en eru opin fyrir allar konur óháð búsetu eða lögheimili.
Einnig er boðið upp á ráðgjafaviðtöl að kostnaðarlausu. Vaktsími Kvennaathvarfsins er opinn allan sólarhringinn og þar geta þolendur, aðstandendur og fagfólk fengið ráðgjöf og stuðning.