05 maí 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Í sund í sumar: 22 menningarviðburðir hljóta styrk
Í tilefni þess að sundlaugamenning á Íslandi var í desember staðfest á lista UNESCO yfir óáþreifanlega menningararf heims, auglýsti Þjóðminjasafn Íslands, í samstarfi við menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti, eftir umsóknum um styrki til menningarviðburða í sundlaugum landsins.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa en alls bárust 47 umsóknir, þar af hlutu 22 verkefni brautargengi. Til úthlutunar voru 4 milljónir króna sem munu renna til fjölbreyttra verkefna víðs vegar um landið.
Hittast í heita pottinum?
Verkefnin eru fjölbreytt og vítt og breytt um landið en meðal þess sem boðið verður upp á eru tónlistarflutningur, gjörningar, fræðsluviðburðir og samfélagsverkefni. Má sem dæmi nefna sundsalsa, sundkeppni í sögulegum vaðmálsklæðnaði, kórasöng, sundsirkus og fljótandi kokteilkvöld með ætum blómum.
Markmið styrkjanna er að efla menningarlíf í sundlaugum landsins, sem um árabil hafa gegnt mikilvægu hlutverki í daglegu lífi landsmanna, og skapa um leið ný tækifæri til menningarupplifunar í nærumhverfi fólks. Með verkefnunum er einnig leitast við að vekja athygli á þeirri einstöku sundlaugamenningu sem mótað hefur íslenskt samfélag um áratugaskeið.
Frumkvæðið miðar að því að færa list og menningu nær fólki og sameina á skapandi hátt sundlaugamenningu og önnur menningarform. Fram undan er því spennandi sumar þar sem sundlaugar landsins verða ekki aðeins vettvangur slökunar og hreyfingar, heldur einnig lifandi miðstöðvar sköpunar, samveru og menningarupplifunar fyrir unga jafnt sem aldna. Fyrir áhugasama sundelskendur má benda á að íslensk sundlaugarmenning verður kynnt á UNESCO-deginum í Eddu á fimmtudaginn. sjá hér.
Eftirfarandi verkefni hljóta styrk:
|
NAFN UMSÆKJANDA |
HEITI VERKEFNIS: |
STUTT LÝSING |
|
Menningarfélagið Tær |
Konukroppar - sviðsverk í sundlaugum |
Konukroppar er sviðsverk í sundlaug sem kannar kvenlíkamann, rými og íslenska sundlaugarmenningu sem þjóðararf. Verkið sameinar dans og söng og verður sýnt í tengslum við ráðstefnu Norræna dansfræðafélagsins 2026 |
|
MX ehf. |
Sund á Selfossi |
Viðburður í Sundhöll Selfoss sem blandar saman tónlist, slökun og upplifun í innilaug sundhallarinnar. |
|
Í tröllahöndum ehf. |
Sundbíó Sundskála Svarfdæla |
Sundskáli Svarfdæla, ein elsta yfirbyggða sundlaug landsins býður upp á sundbíó í samstarfi við Héraðsskjalasafn Dalvíkubyggðar. |
|
RTD Rannsóknir og tækniþróun Ísland ehf |
Hvalasöngur í kafi og sundmenning Vestmannaeyja |
Samblanda af tónlistar- náttúru-, menningar- og söguupplifun og virkri þátttöku gesta í sundlaug Vestmannaeyja á mögnuðum viðburði, þar sem skjávarpatækni, ljósa- og hljóðkerfi ásamt neðansjávarhátölurum verða nýtt til hins ítrasta til þess að vekja athygli lífríki hafsins, sögu og náttúru Vestmannaeyja. |
|
Menningarhúsið Berg |
Söngsund |
Söngsund - Menningarhús Dalvíkurbyggðar ásamt þremur kórum í Dalvíkurbyggð bjóða gestum upp á sannkallaða söngveislu í Sundlaug Dalvíkur. |
|
Ísafjarðarbær |
Sundlaugamenning – 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar |
Ísafjarðarbær fagnar 30 ára afmæli 1. júní næstkomandi, af því tilefni verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir íbúa sveitarfélagsins. Hluti af dagskránni er röð menningarviðburða í sundlaugum sveitarfélagsins dagana 29. maí – 1. júní 2026. Dagskráin sameinar listgreinar með áherslu á bæjarlistamenn sem útnefndir hafa verið frá árinu 2000. |
|
History Up Close ehf |
Að synda eða sökkva: Hreyfanleiki fólks í hringabrynju við stýrðar aðstæður |
Skipulagt helgarsundmót milli sundlauganna í Stykkishólmi, Búðardal og Borgarnesi með sögulegu ívafi þar sem keppt er í (1) hringabrynjusundi, (2) sundi í sögulegum vaðmálsfötum og (3) að synda með “logandi” kyndil til að kynnast menningararfi Íslands á nýjan hátt. Laugin þar sem flestir ná yfir á hinn endann vinnur! |
|
Salsakommúnan, félagasamtök |
Sumarsalsasund í Árbæjarlaug |
Salsakommúnan og Árbæjarlaug bjóða til sumarsalsaveislu þar sem tónlist, menning og matur frá Mið- og Suður-Ameríku verða í forgrunni. Um er að ræða fjölskylduvænan menningarviðburð í innilaug Árbæjarlaugar sem sameinar íslenska sundlaugarmenningu og suðræna tónlist. Innan um hitabeltisgróður innilaugarinnar skapast hlý stemning sem flytur gesti beint á suðrænar slóðir |
|
Kirkjukór Möðruvallaklaustursprestakalls |
Jónasarlög í Jónasarlaug |
Tónlistarviðburður í Jónasarlaug á Þelamörk á degi íslenskrar tungu þar sem flutt verða lög við ljóð Jónasar Hallgrímssonar. Nemendur í Þelamerkurskóla skapa myndverk sem fljóta í lauginni og skapa einstaka menningarupplifun í anda sundlaugamenningar. |
|
Flothetta ehf |
Vatnaveröld barna |
Hönnunarteymið Flothetta og Þykjó taka höndum saman og skapa leikandi létta vatnaveröld fyrir börn. Útkoman verður falleg upplifunarhönnun á viðburðum fyrir yngri sundlaugargesti sem gengur út á nærandi samveru í leik og skynjun. |
|
Hringleikur - sirkuslistafélag |
Sirkus Sund! - nýsirkus í Laugardalslaug |
Sirkus Sund! er staðbundin (e. site-specific) nýsirkussýning sem verður sköpuð sérstaklega fyrir Laugardalslaug. Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Side-Flipp, sem er upptaktur að sirkushátíðinni Flip Festival. Verkið er aðgengileg, spennandi en jafnframt súrrealísk upplifun sem fléttar sirkuslistum, s.s. loftfimleikum, akróbatík og trúðleik, við sundlaugarmenningu, og vatn í víðum skilningi. |
|
Karlakór Akureyrar - Geysir |
Sungið í lauginni |
Karlakór Akureyrar - Geysir (KAG) mætir í sund og tekur lagið í sundlaugum Akureyrar. |
|
Sveitarfélagið Hornafjörður |
Fjölmenningarbíó í Sundlaug Hafnar |
Fjölmenningarbíó í Sundlaug Hafnar mun bjóða fjölbreyttum íbúahóp Sveitarfélagsins Hornafjarðar að kynnast íslenskri menningu á skemmtilegan og öðruvísi hátt. Sýnd verður íslensk kvikmynd á breiðtjaldi utandyra á meðan gestir slaka á í sundlauginni og pottunum. Að sýningu lokinni verður boðið upp á pylsu og ís. |
|
Margrét Erla Maack |
Sundballetttímar á Vestfjörðum með Sundballettinum Eilífðinni |
Sundballettinn Eilífðin hefur slegið í gegn undanfarin sumur á höfuðborgarsvæðinu en nú er komið að Vestfjörðum. Tímarnir eru ætlaðir öllum þeim sem eru syndir og ná til botns og eru til í fegurð og fíflagang, núvitund og gleði. |
|
Eyjafjarðarsveit |
Sundmenningarhátíðin í Eyjafjarðarsveit |
Tónleikar karlakórs Eyjafjarðar í sundlauginni í Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit í haust á nýrri sundlaugarmenningarhátíð. |
|
Langanesbyggð |
New Ways to Experience Pool Culture – A Floating Event in Langanesbyggð |
This project introduces a collective floating event in the local indoor swimming pool where participants float together in a calm environment with music and lighting. Two sessions will allow more people to participate and experience the swimming pool as a cultural meeting space focused on wellbeing and community. |
|
Svæðisgarður Snæfellsness ses. |
KvöldSundStund á Snæfellsnesi |
Svæðisgarður Snæfellsnes í samvinnu við sundlaugar á Snæfellsnesi (þær eru 4) heldur viðburð á hverju stað. Viðburður er um kvöld með lengri opnun. Á viðburði er boðið upp á tónlist úr héraði, við gerum óáfengan koktel úr ölkelduvatni með ætum blómum og rabarbarasýrópi, segjum sögur og njótum samveru. |
|
Katla Rut Pétursdóttir |
Skáldasuð - ljóðahátíð |
Hátíðin Skáldasuð verður haldin í fyrsta sinn innan Múlaþings á vormánuðum. Hátíðin færir ljóðlist út fyrir hefðbundin rými og inn í óvænt umhverfi, svo sem sundlaugar, heita potta og búningsklefa. Lögð er áhersla á skapandi, sjónræna og aðgengilega miðlun sem gerir ljóð að lifandi og skemmtilegri upplifun fyrir öll. |
|
Halla Jónsdóttir |
Syngjum saman í sundi |
Á Akranesi er mikið og blómlegt menningarlíf. Með verkefninu Syngjum saman í sundi verður gefið fólki á öllum aldri tækifæri að gera sér dagamun með skemmtilegri sundferð þar sem tónlist og söngvar verða í fyrirrúmi. Stefnt er að því að standa fyrir tveimur ólíkum viðburðum í sundlaugum Akraness í júní. |
|
Jazzhátíð Reykjavíkur |
Jazzhátíð Reykjavíkur í Vesturbæjarlaug |
Á Jazzhátíð Reykjavíkur ætlum við að bjóða upp á jazztónleika í Sundlaug Vesturbæjar laugardaginn 29. ágúst kl. 14:00 með Stórsveit Vesturbæjar og Miðbæjar (SVoM). Gestir geta notið lifandi jazztónlistar í einstöku umhverfi þar sem heitt vatn, sumarstemning og tónlist mætast. |
|
Páll Sólmundur h. Eydal |
SundStrengir |
Hljómsveitin Strengir leikur íslensk og erlend dægurlög í bland fyrir sundlaugargesti. Tekið verður við óskalögum á sundlaugarbakkanum og fólk hvatt til að syngja með. Strengir eru þekktir fyrir líflega sviðsframkomu, mikið stuð, hlýtt viðmót og láta engan ósnortinn. Komið í sund og syngið uppáhaldslögin ykkar á einstakri söngstund með Strengjum! |
|
Þorgeir Rúnar Finnsson |
Sundlaugamenning í Grýtubakkahreppi - tal og tónar |
Farið verður yfir áhugaverða sögu sundmenningar í fámennu sveitarfélagi á landsbyggðinni, allt frá sundkennslu í Gljúfrárgili til byggingar og endurbóta nýrrar sundlaugar á Grenivík. Samhliða því verður boðið upp á fjölbreytt tónlistaratriði; nemendur Grenivíkurskóla spila á marimbur, tónlistarmaður frá Eistlandi kemur fram og Húsbandið frá Grenivík lýkur viðburðinum á balli. |