05 maí 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Mikilvægi brjóstagjafar fyrir heilsu barna og mæðra
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur falið embætti landlæknis að leiða vinnu við mótun stefnu um brjóstagjöf á Íslandi. „Það er mikilvægt að gefa þessu máli gaum, því brjóstagjöf er mikilvægt lýðheilsumál og fyrir liggja staðreyndir um jákvæð áhrif brjóstagjafar á heilsu barna og mæðra“ segir ráðherra. Brjóstagjöf hefur verið hröðu undanhaldi hér á landi síðustu ár og eru nú aðeins um 25% barna á brjósti eingöngu við 6 mánaða aldur sem er undir markmiðum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar.
Ákvörðun ráðherra byggist á upplýsingum þar sem sýnt er fram á að heildstæða stefnu vanti um brjóstagjöf, nauðsynlegt sé að endurskoða fyrirliggjandi leiðbeiningar hvað þetta varðar, bæta þurfi gagnasöfnun og jafna og samræma aðgengi að þjónustu. Embætti landlæknis mun leiða stefnumótunarvinnuna í samvinnu við helstu hagaðila, þar á meðal fagfélög, heilbrigðisstofnanir og sérfræðinga á sviði brjóstagjafar. Áhersla verður lögð á að:
- bæta aðgengi að ráðgjöf og stuðningi við brjóstagjöf
- samræma leiðbeiningar og verklag á landsvísu
- efla fræðslu til foreldra og fagfólks
Alþjóðleg markmið gera ráð fyrir að árið 2030 verði hlutfall barna sem eru eingöngu á brjósti við 6 mánaða aldur verði um 60% og er nýrri stefnu ætlað að styðja við þetta markmið. Gert er ráð fyrir að stefnan verði tilbúin og taki gildi í janúar 2027.
Það er ekki tilviljun að Alma tilkynni ákvörðun sína um að ráðast í þessa stefnumótun í dag, 5. maí sem er alþjóðlegur dagur ljósmæðra. Þess er nú minnst með ýmsum hætti víða um heim og störfum þeirra í þágu heilbrigðis mæðra, barna og fjölskyldna fagnað með ýmsu móti. Heilbrigðisráðherra óskar ljósmæðrum til hamingju með daginn.