06 maí 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Tæpir 1,4 milljarðar króna til uppbyggingar öldrunarþjónustu

{image.Description}
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Björn Snæbjörnsson, formaður stjórnar framkvæmdasjóðs aldraðra.

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra hefur úthlutað tæpum 1,4 milljörðum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra vegna ársins 2026. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Alls voru veittir 55 styrkir til margvíslegra framkvæmda og endurbóta á öldrunarstofnunum vegna ársins 2026. Til samanburðar voru 44 styrkir veittir á árinu 2025.

Úthlutanirnar eru í samræmi við tillögur stjórnar Framkvæmdasjóðs aldraðra sem leggur mat á umsóknir í samræmi við reglugerð um sjóðinn og gerir tillögur til ráðherra um úthlutanir úr honum.

Í byrjun árs 2026 var reglugerð um sjóðinn breytt á þann veg að styrkjahlutföll voru hækkuð úr 20/40% í 50% og var tilgangurinn ekki síst að laða að umsóknir frá minni öldrunarstofnunum á landsbyggðinni sem hafa átt í erfiðleikum með að fjármagna mótframlögin.

  • Niðurstaða ársins sýnir að hlutur landsbyggðarinnar í innsendum umsóknum um styrki nær tvöfaldaðist á milli áranna 2025 og 2026 (jókst úr 8% í 14%).
  • Ef litið er á veitta styrki nær þrefaldaðist hlutfall landsbyggðarinnar milli ára (fór úr 8% í 21%).

Við mat á umsóknum og forgangsröðun úthlutana lagði stjórnin sérstaka áherslu á bættan aðbúnað í íbúðum, lyftur og bætt aðgengi íbúa, öryggiskerfi og öryggismál ásamt viðhaldi húsnæðis, innan og utan. Þá var bættur aðbúnaður í sameiginlegum rýmum og viðgerðir vegna rakaskemmda einnig í forgangi.