07 maí 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Efnismikill ársfundur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands
Ársfundur Heilbrigðisstofnunar Vesturlands (HVE) var haldinn á Akranesi í liðinni viku og þá kom einnig út ársskýrsla stofnunarinnar með yfirgripsmiklum upplýsingum um starfsemi ársins 2025, áherslur í starfi hennar og verkefnin framundan. Eftirtektarverður árangur hefur náðst á ýmsum sviðum starfseminnar, t.d. hafa aldrei verið gerðar fleiri liðskiptaaðgerðir en á síðasta ári, alls 421. Markvisst hefur verið unnið að gæðamálum og mannauðsmálum og ýmsar nýjungar hafa verið innleiddar til að efla stofnunina og þjónustu við íbúa í umdæmi hennar.
Ársfundurinn hófst með ávarpi Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra sem nýtti sér fjarfundabúnað þar sem hún átti þess ekki kost að mæta vegna anna á Alþingi. Fjarfundabúnaðurinn nýttist einnig starfsfólki stofnunarinnar í umdæminu til að fylgjast með, en starfsstöðvar í víðfeðmu umdæmi HVE eru átta, allt frá Akranesi í suðri til Hólmavíkur í norðri, Hvammstanga í austri og Ólafsvík í vestri, auk þess sem stofnunin rekur hjúkrunarheimilin Systraskjól í Stykkishólmi og Silfurtún í Búðardal. Alls eru starfsmenn stofnunarinnar um 500 sem sinna þjónustu við tæplega 19.000 íbúa umdæmisins.
Alma ræddi meðal annars í ávarpi sínu um mönnun heilbrigðisþjónustu og fagnaði formlegu samstarfi HVE og sveitarfélaganna í umdæminu sem miðar að því að laða að mannauð og gera starfsstöðvar HVE og búsetu á Vesturlandi að eftirsóknarverðum valkosti fyrir heilbrigðisstarfsfólk. Hún gerði einnig að umtalsefni undirbúning að innleiðingu þjónustutengdrar fjármögnunar HVE sem er komin vel á veg. Þar vegur þungt hvað skráning heilbrigðisupplýsinga hjá stofnuninni er vönduð og vel samræmd en það er grundvallarforsenda innleiðingarinnar.
Jóhanna Fjóla Jóhannsdóttir forstjóri HVE, lagði áherslu á þá markvissu vinnu í gæðamálum sem stofnunin hefur sett á oddinn og miðar m.a. að því að innleiða alþjóðlega gæðastaðalinn ISO 7101:2023 og festa í sessi. Markviss vinna að mannauðsmálum hefur einnig skilað árangri sem birtist í vaxandi ánægju starfsfólks í reglubundnum könnunum. Síðast en ekki síst mælist vaxandi ánægja meðal þeirra sem nýta sér þjónustu stofnunarinnar í þjónustukönnun ríkisstofnana: „Þetta er frábær árangur sem speglar þá góðu þjónustu sem veitt er og starfsfólk má vera stolt af“ segir Jóhanna Fjóla.
Það kom glöggt fram í erindum forstjóra og fulltrúum í framkvæmdastjórn HVE að þótt viðfangsefnin séu ærin og áskoranir margar er enginn bilbugur á stjórnendum og starfsfólki stofnunarinnar og ýmis verkefni í deiglunni. Má þar nefna áform um stofnun heimaspítala með það að markmiði að veita sjúklingum sem mesta og besta þjónustu í heimahúsum, fækka komum á bráðamóttöku og innlögnum á sjúkradeild. Hulda Gestsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar sagði frá þessu í erindi á ársfundinum. Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga kom víða við í sínu erindi sínu og ræddi meðal annars um væntingar til nýrrar sérmenntunar í héraðslækningum og metnað og getu HVE til að sinna kennslu í þeirri grein. Ásgeir Ásgeirsson, framkvæmdastjóri fjármála kynnti ársreikning stofnunarinnar og fjallaði um stöðu rekstursins, styrkleika og áskoranir. Stofnuninni er þyngst í skauti kostnaður vegna kjarasamninga ríkisins við Læknafélag Íslands á liðnu ári sem hefur reynst mun meiri en reiknað hafði verið með.
Fundarstjóri á ársfundinum var Garðar Jónsson, gæðastjóri HVE.