08 maí 2026
/
Innviðaráðuneytið
Innviðaráðherra á fundum með evrópskum ráðherrum samgangna og siglinga
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra tók þátt í fundahöldum með evrópskum samgöngu- og siglingaráðherrum í Nicosia á Kýpur í lok apríl. Kýpverjar fara með formennsku í ráðherraráði ESB um þessar mundir og af því tilefni var ráðherrum EFTA-ríkjanna og aðildarríkja ESB í þessum málaflokkum boðið til funda þar í landi.
Á fundi samgöngumálaráðherranna voru málefni hafna einkum til umræðu m.a. í samhengi við óvissuástand vegna átakanna í Mið-Austurlöndum. Ráðherra tók til máls á fundinum og fjallaði um aðstæður á Íslandi. Ísland reiði sig á sjóflutninga fyrir yfir 90% af inn- og útflutningi vöru. Aðrar flutningaleiðir en flug og siglingar væru eðli málsins samkvæmt ekki í boði. Ráðherra benti á að samkeppni væri afar mikilvæg í flutningum og að flutningsaðilar hefðu greiðan aðgang að höfnum og hvers konar skipaafgreiðslu.
Á fundi siglingamálaráðherranna var m.a. fjallað um samkeppnishæfni evrópsks siglingaiðnaðar, áskoranir tengdar mönnun, þjálfun og menntun farmanna ásamt aðgerðum til að styðja við starfskilyrði farmanna og jafnrétti kynjanna í stéttinni.
Innviðaráðherra tók einnig til máls á þeim fundi. Hann fjallaði um mikilvægi málaflokksins fyrir Íslendinga sem treysta á siglingar fyrir flutning á stærstum hluta vara til og frá landinu. Lagði hann áherslu á að siglingar væru reynslufag og ekki mætti slaka á kröfum þar. Fara þurfi saman nám í kennslustofnum og starfsnám á sjó. Þá fjallaði hann um árangur sem Ísland hafi náð við að draga úr slysum á sjó með aukinni öryggisþjálfun og öryggisvitund sjómanna. Ráðherra undirstrikaði mikilvægi þess að auka þátt kvenna í siglingum og benti á að til þess þurfi að bjóða upp á öruggt starfsumhverfi, laust við áreiti.
Samhliða fundunum tveimur átti innviðaráðherra tvíhliða fundi m.a. með Apostolos Tzitzikostas, framkvæmdastjóra á sviði samgangna í framkvæmdastjórn ESB. Á þessum fundum var óskað eftir stuðningi við aðild Íslands að loftferðasamningum ESB. Auk þess var farið yfir áhyggjur Íslands af þróun mála varðandi ETS-viðskiptakerfið með loftlagsheimildir.