08 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Samráð Íslands og Bretlands um alþjóða-, öryggis- og varnarmál

{image.Description}
Fulltrúar utanríkisráðuneytisins ásamt bresku sendinefndinni.

Reglulegu samráði Íslands og Bretlands á embættismannastigi um alþjóða-, öryggis- og varnarmál lauk í Reykjavík í dag. Tvíhliða samskipti ríkjanna, staða alþjóðamála, vaxandi samstarf á sviði varnarmála, svæðisbundið samstarf, málefni Úkraínu og ástand mála í Mið-Austurlöndum var til umræðu á fundinum.

Anna Hjartardóttir, skrifstofustjóri skrifstofu alþjóðapólitískra málefna, og Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu leiddu samráðið fyrir hönd Íslands. Breska sendinefndin var leidd af Dr. Ruth Wiseman, deildarstjóra fyrir Norður- og Mið-Evrópu hjá utanríkisráðuneytinu, Rob Douglas, aðstoðadeildarstjóra Evrópusviðs hjá forsætisráðuneytinu og David Morgan, aðstoðardeildarstjóra hjá varnarmálaráðuneytinu.

Sameiginlega fréttatilkynningu á ensku má lesa hér.