09 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Innviðaráðuneytið

Loftferðasamningur Íslands og Suður-Kóreu hefur öðlast gildi

{image.Description}
Mynd tekin við undirritun samningsins við Suður-Kóreu þann 4. desember 2025. Högni S. Kristjánsson, sendiherra Íslands í Noregi, undirritaði samninginn ásamt Minjeong Seo, sendiherra Suður-Kóreu í Noregi.

Loftferðasamningur milli Íslands og Lýðveldisins Kóreu (Suður-Kóreu) hefur öðlast gildi, eftir að bæði ríkin staðfestu samninginn í samræmi við ákvæði hans um gildistöku.

Samningurinn tók formlega gildi 17. apríl síðastliðinn. Hann kveður á um gagnkvæmar heimildir til áætlunarflugs milli Íslands og Suður-Kóreu og er til þess fallinn að efla tengsl ríkjanna og flugsamgöngur þeirra á milli.


Hér er að finna yfirlit yfir loftferðasamninga Íslands.

Sjá frétt um undirritun loftferðasamningsins við Suður-Kóreu í desember 2025.