11 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Fyrsta pólitíska samráð Íslands og Tyrklands

{image.Description}
Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu ásamt Mehmet Kemal Bozay varautanríkisráðherra Tyrklands.

Ísland og Tyrkland áttu sitt fyrsta tvíhliða pólitíska samráð í Ankara dag. Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og Mehmet Kemal Bozay, varautanríkisráðherra Tyrklands og skrifstofustjóri Evrópumála, ræddu m.a. samstarf ríkjanna á vettvangi Sameinuðu þjóðanna og Atlantshafsbandalagsins en leiðtogafundur bandalagsins fer einmitt fram í Ankara í júlí.

Þá var tvíhliða samband ríkjanna á sviði viðskipta, menningar og stjórnmála til umræðu á fundinum, en fyrirhugað er að Tyrkland opni sendiráð í Reykjavík á næstu misserum.

Staða öryggismála í Evrópu, ástandið í Mið-Austurlöndum og samskiptin við Evrópusambandið voru ennfremur í brennidepli á fundinum.