11 maí 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Umsækjendur um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Mennta- og barnamálaráðuneytinu bárust sjö umsóknir um embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Umsækjendur:
- Elvar Jónsson, leiðtogi farsældar barna
- Guðmundur Stefán Gunnarsson, kennari og íþróttafræðingur
- Harpa Jörundardóttir, framhaldsskólakennari og sérfræðingur
- Hrafnhildur Hafberg, framhaldsskólakennari, alþjóðafulltrúi og kynningarstjóri
- Margrét Jónsdóttir Njarðvík, fyrrverandi rektor
- Nanna Kristjana Traustadóttir, sérfræðingur
- Víðir Stefánsson, aðstoðarskólameistari
Embættið var auglýst laust til umsóknar þann 8. apríl síðastliðinn með umsóknarfresti til og með 27. apríl. Mennta- og barnamálaráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6. gr. laga um framhaldsskóla og lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, með síðari breytingum.