12 maí 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Kostnaður endurgreiddur vegna ferða leiðsöguhunda erlendis
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur undirritað nýja reglugerð um endurgreiðslu kostnaðar vegna leiðsöguhunda við ferðalög notenda erlendis.
Reglugerðin gildir um endurgreiðslu úr ríkissjóði á kostnaði sem fellur til þegar notendur leiðsöguhunda, með lögheimili á Íslandi, ferðast með hunda sína til útlanda. Ákvæðin ná til leiðsöguhunda sem Sjónstöðin hefur úthlutað sem hjálpartæki á grundvelli laga um Sjónstöðina.
-
Markmið reglugerðarinnar er að tryggja að sá viðbótarkostnaður sem hlýst af ferðalögum með leiðsöguhund, og stafar af skilyrðum sem sett eru í reglum um innflutning hunda og katta og einangrun þeirra, falli ekki á notendurna sjálfa.
-
Í stað þess verður kostnaðurinn endurgreiddur úr ríkissjóði, samkvæmt nánari útfærslu í reglugerðinni. Heilbrigðisskoðun dýralæknis fyrir brottför frá Íslandi er endurgreiddur, útflutningsáritun, heilbrigðisskoðun dýralæknis erlendis fyrir komu til Íslands, gjöld tengd innflutningsleyfi og kostnaður vegna sóttvarnarráðstafana og einangrunar við komu til Íslands.
„Breytingunni er ætlað að gera notendum leiðsöguhunda auðveldara að ferðast og tryggja jafnræði þeirra til þátttöku í samfélaginu,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson.
Reglugerðin var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda fyrr á árinu. Blindrafélagið fagnaði þar áformunum og undirstrikaði að með þeim væri stigið mikilvægt skref í átt að auknu jafnrétti í samgöngum fyrir þá sem þurfa að ferðast með leiðsöguhunda. Áformin væru í samræmi við markmið um jafnrétti, virka samfélagsþátttöku og skuldbindingar stjórnvalda á sviði réttinda fatlaðs fólks.