14 maí 2026

/

Innviðaráðuneytið

Flug til Vestmannaeyja styrkt út maímánuð

{image.Description}

Innviðaráðuneytið hefur framlengt samning um stuðning við áætlunarflug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur um tvær vikur, eða til og með 31. maí nk. Áfram verður flogið tvisvar á dag alla daga vikunnar á þessu tímabili. Þetta er gert til að koma til móts við alvarlega stöðu í samgöngumálum Vestmannaeyja síðustu vikur.

Við framlengingu um síðustu mánaðamót var tíðni flugferða aukin og ákveðið að fljúga tvisvar á dag, alla daga vikunnar.