15 maí 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Nýr fangelsismálastjóri tekinn til starfa

{image.Description}

Ragna Bjarnadóttir tók í morgun til starfa sem nýr forstjóri Fangelsismálastofnunar. Hún er fyrsta konan til að gegna þessu embætti og fyrsti nýi forstjóri stofnunarinnar í 18 ár en Birgir Jónasson hefur verið settur fangelsismálastjóri frá 2024. 

Margvíslegar aðgerðir til að bregðast við alvarlegri stöðu í fangelsismálum

Ragna var flutt í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar í lok mars með vísan til heimildar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hún hafði verið skrifstofustjóri í dómsmálaráðuneytinu frá árinu 2017 og stýrt skrifstofu almanna- og réttaröryggis síðan 2025. 

Ragna Bjarnadóttir tekur við embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar

„Það eru áhugaverðir tímar og talsverðar áskoranir framundan í fangelsismálum á Íslandi. Við erum að fara að byggja nýtt fangelsi sem verður mikil breyting en það eru líka fjölmörg önnur verkefni í gangi, stór og smá. Ég er mjög þakklát fyrir að ráðherra skuli treysta mér fyrir embættinu á þessum tímamótum. Ég hlakka mikið til að kynnast öllu því frábæra fólki sem vinnur að fangelsismálum og leiða stofnunina í gegnum þessar breytingar,“ segir Ragna.