18 maí 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
19 verkefni hljóta styrk úr Örvari
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr Örvari til 19 verkefna á málefnasviði ráðuneytisins. Opið er fyrir umsóknir í sjóðinn allt árið um kring og hefur Örvar það hlutverk að styrkja verkefni og viðburði á málefnasviðum menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Styrkjum er úthlutað þrisvar sinnum á ári. Umsóknarfrestur þessarar fyrstu úthlutunar ársins var til 31. mars síðastliðinn. Alls barst 51 umsókn og verða að þessu sinni 19 fjölbreytt verkefni styrkt fyrir samanlagt 15.720.000 kr. Hámarksupphæð styrks sem hvert verkefni getur hlotið er 1,5 m.kr.
Allar nánari upplýsingar um Örvar má nálgast á heimasíðu sjóðsins.