18 maí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Er verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Nei.
Umrædd þjóðaratkvæðagreiðsla snýst einvörðungu um hvort íslensk stjórnvöld eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við ESB sem þáverandi stjórnvöld ákváðu að setja á ís árið 2013.
Íslenska þjóðin mun ávallt hafa síðasta orðið um mögulega aðild að ESB, sem yrði sömuleiðis borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu að undangengnum aðildarviðræðum.
Það er mat ríkisstjórnarinnar að áframhald aðildarviðræðna við ESB sé svo viðamikið hagsmunamál að ekki komi annað til greina en að leita leiðsagnar þjóðarinnar í þeim efnum. Þjóðin hafði ekki beina aðkomu að því að hefja ferlið árið 2009 og nú er tækifæri til að leiðrétta það. Þá liggur fyrir að þjóðin getur ekki tekið afstöðu til aðildar nema að aðildarviðræðum verði haldið áfram og þeim lokið með samningi um aðild Íslands að ESB sem síðan yrði lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.