18 maí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Hver er kostnaðurinn við þjóðaratkvæðagreiðslu?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Landskjörstjórn metur kostnað af framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar á um 500-600 milljónir kr.
Er þar hafður til hliðsjónar kostnaður við síðustu forsetakosningar sem taldar eru sambærilegar að umfangi. Stærstu kostnaðarliðirnir yrðu framkvæmd utankjörfundaratkvæðagreiðslu, framkvæmd talningar hjá yfirkjörstjórnum kjördæma, prentun og dreifing kjörgagna og framlag til sveitarfélaga á grundvelli reglugerðar um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga.
Þá mun landskjörstjórn láta útbúa kynningarefni um málefnið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu.