19 maí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Hver voru helstu samningsmarkmið Íslands á sviði orkumála í aðildarviðræðunum árin 2009 - 2013?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Hver voru helstu samningsmarkmið Íslands á sviði orkumála í aðildarviðræðunum árin 2009-2013?
Fjallað er um orkumál í 15. kafla aðildarviðræðna. Kaflinn var opnaðu 12. desember 2011. Viðræður stóðu yfir þegar aðildarviðræður voru settar á ís. Ísland átti eftir að leggja fram frekari upplýsingar og áætlanir svo hægt væri að loka kaflanum.
Samningsmarkmið Íslands voru:
- Tryggja eignarhald á orkuauðlindum Íslands og rétt til þess að stjórna þeim.
- Áframhaldandi undanþágur og aðlaganir sem þegar hafa verið tryggðar innan EES.
- Árétta að Ísland er ekki tengt við raforkumarkað ESB og að ákvörðun um slíka samtengingu væri ákvörðun Íslands.
- Ísland óskaði eftir aðlögunartíma til 2030 vegna lágmarksbirgða af hráolíu.
Ítarefni:
Nánar um málið í minnisblaði sem utanríkisráðuneytið vann að beiðni utanríkismálanefndar, dags. 17. apríl 2026.
Nánar um orkumálakaflann á vef sem tileinkaður var aðildarviðræðunum árin 2009-2013.