20 maí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Hver voru helstu samningsmarkmið Íslands á sviði vinnu- og félagsmála í aðildarviðræðunum árin 2009-2013?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
2. kafla (frjáls för vinnuafls) var lokað til bráðabirgða í október 2011. Viðræður um 19. kafli (félags- og vinnumál) voru hafnar en var ekki lokið þegar hlé var gert á viðræðum. 3. kafli (staðfesturéttur og þjónustufrelsi) var ekki opnaður vegna tengingar við sjávarútvegskaflann.
Áhersluatriði í samningsafstöðu:
- Ekki var óskað eftir sérlausnum eða undanþágum.
- Lögð var áhersla á mikilvægi þróaðs vinnumarkaðskerfis á Íslandi og þríhliða viðræðna stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Jafnframt rétt aðila vinnumarkaðarins til að semja sín á milli í kjarasamningum.
- Reglur sem koma í veg fyrir félagsleg undirboð.
Ítarefni:
Nánar um vinnu- og félagsmál í samningskafla um frjálsa för vinnuafls, félags- og vinnumál og staðfesturétt og þjónustufrelsi á vef sem tileinkaður var aðildarviðræðunum árin 2009-2013.