21 maí 2026

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Árni Ólason skipaður skólameistari Menntaskólans á Egilsstöðum

{image.Description}

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Árna Ólason í embætti skólameistara Menntaskólans á Egilsstöðum til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Árni hefur starfað við skólann í 34 ár sem kennari, kennslustjóri, áfangastjóri og sem skólameistari til tíu ára.

Árni er með cand.mag. gráðu frá Norges Idrettshögskole í heilsu- og íþróttalífeðlisfræði auk kennsluréttinda frá Íþróttakennaraskóla Íslands að Laugarvatni.

Alls sóttu tveir um embættið.