21 maí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Hvaða tíma geta aðildarviðræður tekið og hver yrði kostnaður við þær?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Hvaða tíma geta aðildarviðræður tekið og hver yrði kostnaður við þær?
Það er mat stjórnvalda að með gagnkvæmum vilja samningsaðila væri hægt að ljúka aðildarviðræðum á 18-24 mánuðum með gagnkvæmum vilja beggja samningsaðila. Byggir það mat meðal annars á samtali við ráðamenn og framgangi viðræðna á árunum 2009-2013, þar sem 27 af 35 samningsköflum höfðu þegar verið opnaðir og viðræðum lokið um 11 samningskafla. Lengt viðræðna mun hins vegar ráðast af því hvernig gengur að ná ásættanlegri niðurstöðu sem tekur tillit til sérstöðu Íslands og meginhagsmuna. Samningaviðræður gætu hafist einhvern tíma á bilinu október til desember 2026.
Utanríkisráðuneytið hefur tekið saman mat við beinan kostnað, ákveði þjóðin að gengið skuli til aðildarviðræðna. Áætlaður kostnaður nemur samtals 1.895 milljónum kr. Þar nemur launakostnaður samtals 1.120 milljónum kr., þýðingakostnaður 600 milljónum kr. og kostnaður annarra ráðuneyta 175 milljónum kr.
Heimild: