18 ágúst 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Hver er kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu?
Austurríki - Nettóframlög ESB-ríkja
Heimildir:
(1) Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, EU Budget Spending and Revenue 2000-2024, vefslóð: https://commission.europa.eu/document/download/45d0623a-529e-44d2-aae4-2ca9bac87ec3_en?filename=eu_budget_spending_and_revenue_2000-2023.xlsx
Seðlabanki Þýskalands, EU finances: Member States’ financial relationships with the EU in 2024 and the multiannual financial framework for 2028-34, vefslóð: EU finances: Member States’ financial relationships with the EU in 2024 and the multiannual financial framework for 2028-34 | Bundesbank publications
(2) Sjá má framlög aðildarríkja ESB til fjárlaga sambandsins og nettóframlög þeirra á árinu 2024 í samantekt Seðlabanka Þýskalands: vefslóð: EU finances: Member States’ financial relationships with the EU in 2024 and the multiannual financial framework for 2028-34 | Bundesbank publications.
Fyrri upplýsingar dagsettar 21. júní sem hafa verið uppfærðar:
Hver er kostnaðurinn við aðild að Evrópusambandinu?
Við mat á kostnaði við aðild þarf að taka tillit til beinna framlaga Íslands, þess sem Ísland fengi til baka úr sjóðum sambandsins og kostnaði sem félli samhliða aðild, svo sem vegna EES-samstarfsins. Með því má leggja mat á raunframlag Íslands. Sumir þessi þætti eru óvissu háðir en myndu að hluta skýrast samhliða aðilarviðræðum. Við mat á mögulegum kostnaði við aðild hefur verið horft til raunframlaga annarra ríkja, m.a. Finnlands. Raunframlag Finnlands til ESB nema um 0,2-0,3% af vergri landsframleiðslu.
Byggt á þeim forsendum mætti sjá fyrir sér að kostnaður við aðild Íslands yrði eftirfarandi.
- Verg landsframleiðsla Íslands 2025: um 5.000 ma.kr.
- Hugsanlegt nettóframlag Íslands til ESB: um 10-15 ma.kr.
- Kostnaður vegna EES-samstarfsins sem myndi falla niður: um 8 ma.kr. á ári
- Aðildargjöld Íslands eftir frádrátt EES-gjalda: áætlað 2-7 ma.kr. á ári
Einnig má benda á mat hugveitunnar Evrópustrauma frá því í mars 2026 þar sem kemur fram að raunframlag Íslands gæti numið um 6-9 milljörðum kr.
Ítarefni:
Nánar um áætlaðan kostnað aðildar í minnisblaði (bls. 20) sem utanríkisráðuneytið vann að beiðni utanríkismálanefndar Alþingis, dags. 17. apríl 2026.