22 maí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Hver var staða aðildarviðræðna þegar hlé var gert árið 2013?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------
Hver var staða aðildarviðræðna þegar hlé var gert árið 2013?
Viðræðum um aðild að Evrópusambandinu er skipt upp í 35 samningskafla á hinum ýmsu málefnasviðum, þar af 33 efniskafla.
Þegar hlé var gert á aðildarviðræðum Íslands gagnvart Evrópusambandinu síðast höfðu 27 samningskaflar verið opnaðir af efnisköflunum 33. Að auki hafði Ísland lagt fram samningsafstöðu í tveimur köflum til viðbótar. Alls hafði viðræðum vegna 11 samningskafla verið lokið.
Hægt er að kynna sér framvindu og stöðu í viðræðunum eins og þær stóðu árið 2013 í skýrslu utanríkisráðherra frá apríl 2013.
| Köflum lokað (11) | Kaflar opnir, viðræðum ólokið | Samningsafstaða afhent, kaflar ekki opnaðir | Samningsafstaða lá ekki fyrir |
Frjáls för vinnuafls (2. kafli), Félagaréttur (6. kafli), Hugverkaréttindi (7. kafli), Samkeppnismál (8. kafli), Fyrirtækja- og iðnstefna (20. kafli), Samevrópsk net (21. kafli), Vísindi og rannsóknir (25. kafli), Menntun og menning (26. kafli), Neytenda- og heilsuvernd (28. kafli), Réttarvarsla og grundvallarréttindi (23. kafli), Utanríkis-, öryggis- og varnarmál (31. kafli) | Frjálsir vöruflutningar (1. kafli), Opinber innkaup (5. kafli), Fjármálaþjónusta (9. kafli), Upplýsingasamfélagið og fjölmiðlar (10. kafli), Flutningastarfsemi (14. kafli), Orkumál (15. kafli), Skattamál (16. kafli), Efnahags- og peningamál (17. kafli), Félags- og vinnumál (19. kafli), Byggðastefna (22. kafli), Umhverfismál (27. kafli) | Matvælaöryggi og dýra- og plöntuheilbrigði (12. kafli), Dóms- og innanríkismál (24. kafli) | Staðfesturéttur og þjónustufrelsi (3. kafli), Frjálsir fjármagnsflutningar (4. kafli), Landbúnaður og dreifbýlisþróun (11. kafli), Sjávarútvegur (13. kafli) |
Ítarefni:
Skýrsla utanríkisráðherra: Aðildarviðræður Íslands og ESB - Framvinda og staða frá apríl 2013