22 maí 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Um hvað er verið að kjósa?
Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.
--------------
Um hvað er verið að kjósa?
Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um það hvort íslensk stjórnvöld eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið að nýju. Ef kjósendur svara þeirri spurningu játandi fara aðildarviðræður í kjölfarið af stað. Þegar og ef samningar nást í aðildarviðræðum mun sá samningur ganga til annarrar þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið.
Sjá þingsályktun nr. 14/157 sem samþykkt var á Alþingi 28. maí 2026 um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Er verið að kjósa um aðild að Evrópusambandinu?
Nei.
Umrædd þjóðaratkvæðagreiðsla snýst einungis um hvort íslensk stjórnvöld eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við ESB sem þáverandi stjórnvöld ákváðu að setja á ís árið 2013.
Íslenska þjóðin mun ávallt hafa síðasta orðið um mögulega aðild að ESB, sem yrði sömuleiðis borin undir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu að undangengnum aðildarviðræðum.
Það er mat ríkisstjórnarinnar að áframhald aðildarviðræðna við ESB sé svo viðamikið hagsmunamál að ekki komi annað til greina en að leita leiðsagnar þjóðarinnar í þeim efnum. Þjóðin hafði ekki beina aðkomu að því að hefja ferlið árið 2009 og nú er tækifæri til að leiðrétta það. Þá liggur fyrir að þjóðin getur ekki tekið afstöðu til aðildar nema að aðildarviðræður hefjist að nýju og þeim lokið með samningi um aðild Íslands að ESB sem síðan yrði lagður fyrir þjóðina í annarri atkvæðagreiðslu til samþykktar eða synjunar.