22 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Um hvað verður spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni þann 29. ágúst?

{image.Description}
Formenn ríkisstjórnarflokkanna. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland.

Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.

--------

Þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um það hvort íslensk stjórnvöld eigi að halda áfram aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. 

Um hvað verður spurt í þjóðaratkvæðagreiðslunni?

Með þingsályktun nr. 14/157, sem Alþingi samþykkti hinn 27. maí 2026, var ákveðið að spurningin í þjóðaratkvæðagreiðslunni, sem fram fer 29. ágúst nk., skuli hljóða svo:

"Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?"

Svarmöguleikar verði þessir:

  • Já.
  • Nei.

 

Ítarefni:

Sjá þingsályktun nr. 14/157 sem samþykkt var af Alþingi 27. maí 2026.

Sjá nefndarálit með breytingartillögu frá meiri hluta utanríkismálanefndar um tillögu þingsályktunar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, þingskjal 1183 - 516. mál.