26 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Nýr loftferðasamningur Ísland og Moldóvu skapar grundvöll fyrir auknu samstarfi og mögulegri þróun flugsamgangna milli Íslands og Moldóvu

{image.Description}
Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Moldóvu með aðsetur í Varsjá, undirritaði samninginn í dag fyrir Íslands hönd.

Í dag undirritaði Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Moldóvu, loftferðasamning við Moldóvu fyrir Íslands hönd.

Með samningnum er komið á ramma með reglum og skilyrðum fyrir mögulega og reglulega flugþjónustu á milli ríkjanna. Hann kveður meðal annars á um gagnkvæm réttindi til flugrekstrar, tilnefningu flugrekenda, öryggis- og verndarkröfur, samkeppnisskilyrði og aðra þætti sem lúta að framkvæmd millilandaflugs á milli samningsríkja.

Hér er að finna yfirlit yfir loftferðasamninga Íslands við önnur ríki. Þeir eru mikilvægir viðskiptasamningar sem stuðla að öruggum farþega- og vöruflutningum til og frá Íslandi og styrkja stöðu íslenskra flugrekenda í millilandaflugi. Samningateymi Íslands á sviði loftferðasamninga er skipað fulltrúum utanríkisráðuneytis, innviðaráðuneytis og Samgöngustofu.