26 maí 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Þórarna Gró sett forstjóri HSA frá 1. júní
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sett Þórörnu Gró Friðjónsdóttur til að gegna embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA) frá 1. júní næstkomandi, þegar Guðjón Hauksson lætur af embættinu og tekur við starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
Þórarna er með BS-gráðu í sálfræði og MS-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað hjá HSA sl. átta ár, fyrst sem rekstrarstjóri á Egilsstöðum og Vopnafirði en síðustu fjögur ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri mannauðs hjá HSA.
Embætti forstjóra HSA verður auglýst laust til umsóknar á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að nýr forstjóri stofnunarinnar verði skipaður 1. september næstkomandi og er Þórarna sett til þess tíma.