26 maí 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Úttektarverkefni hafið hjá dómsmálaráðuneytinu

{image.Description}

Dómsmálaráðuneytið hefur hrundið af stað úttektarverkefni sem miðar að því að greina fjármál, ferla, skipulag, upplýsingamiðlun, samskipti og eftirlit ráðuneytisins með þeim stofnunum sem undir ráðuneytið heyra. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti minnisblað þess efnis á fundi ríkisstjórnarinnar fyrir helgi.

Fyrstu úttektir eru þegar hafnar hjá Útlendingastofnun og Fangelsismálastofnun en 39 fagstofnanir heyra undir ráðuneytið. 

Bætt verklag og aukin skilvirkni

Markmiðið með úttektunum er að nýtt tæki fáist til gæðastjórnunar sem styðji við og skerpi stjórnunar-og eftirlitshlutverk ráðherra. Horft verður til þess hvað sé gert vel, hvað megi bæta og hvort tilefni sé til að endurmeta forgangsröðun eða verklag. Jafnframt verður lögð áhersla á að skilgreina betur  hvaða upplýsingum og gögnum stofnanir þurfi að skila til ráðuneytisins og hvernig megi einfalda þá upplýsingagjöf.

Niðurstöðurnar verða nýttar til að bæta verklag, auka skilvirkni og þær nýttar sem tæki til að hrinda af stað nýrri og skilvirkari framkvæmd. Þegar niðurstöðurnar liggja fyrir verða úttektirnar metnar og nýttar sem grunnur að endurbættu verklagi í samskiptum stofnana við ráðuneytið.

„Eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar er að hagræða og einfalda stjórnsýsluna. Það getur líka þýtt að fá betri þjónustu fyrir sama pening. Við viljum fá betri yfirsýn til þess að styðja áfram vel við okkar stofnanir í þeirra vandasömu verkefnum. Þetta eru góð skref til þess og jákvætt fyrir alla,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.“