27 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Ísland tók upp ETS og verndaraðgerðir gagnvart járnblendi á fundi EES-ráðsins

{image.Description}
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, Sabine Monauni, varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Liechtenstein, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Michael Damianos, viðskiptaráðherra Kýpur og Maroš Šefčovič, framkvæmdastjóri ESB fyrir utanríkisviðskipti og málefni EES-samningsins.

Sérstaða Íslands með tilliti til millilandaflugs og viðskiptakerfis með losunarheimildir var áréttuð á fundi EES-ráðsins fyrr í dag. Þá ítrekaði Ísland andstöðu sína við verndaraðgerðir ESB gagnvart járnblendi. Í sameiginlegum niðurstöðum fundarins var lögð áhersla á góða framkvæmd og virkni innri markaðar EES.

Meginumræðuefni fundarins, sem fram fór í Brussel, var framkvæmd EES-samningsins og samkeppnishæfni og grænn vöxtur á innri markaðnum. Á fundinum lagði Ísland áherslu á að samkeppnishæfni og sjálfbærni séu markmið sem geta styrkt hvert annað og að íslenskt hagkerfi treysti á góða virkni innri markaðarins. Áfram þurfi að tryggja jafnan samkeppnisgrundvöll og fyrirsjáanleg skilyrði fyrir fyrirtæki til að hvetja til fjárfestinga. Lagði Ísland í þessu sambandi áherslu á mikilvægi einföldunar regluverks og þess að minnka óþarfa skrifræði. 

Fulltrúar EFTA-ríkjanna þriggja innan EES áttu einnig pólitískt samráð við Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, þar sem m.a. var rætt um stöðu mála í Úkraínu og Mið-Austurlöndum sem og málefni norðurslóða.  

EES-ráðið er pólitískur vettvangur EES-samstarfsins og fara fundir þess fram tvisvar á ári. Þar hittast fulltrúar EFTA-ríkjanna innan EES auk fulltrúa framkvæmdastjórnar ESB sem og fulltrúa þess ríkis sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB hverju sinni, en Kýpur fer nú með formennsku í ráðinu. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, sótti fundinn fyrir Íslands hönd.