28 maí 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Stefnt að fækkun lögregluembætta en löggæsla efld
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, kynnti á fundi lögregluráðs í vikunni fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Breytingarnar miða að því að styrkja lögreglu á landsvísu, efla löggæslu og bæta skilvirkni. Ráðherra kynnti áformin í ríkisstjórn síðastliðinn föstudag.
Áform eru um að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur til fimm og mynda þannig stærri og öflugri embætti um land allt. Sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verður skoðuð sérstaklega.
Vill öflugri embætti
Vinna við útfærslu breytinganna er enn á frumstigi en gert er ráð fyrir að frumvarp verði lagt fram á Alþingi með haustinu.
„Þetta er ekki nýtt samtal og ég tel að þessar breytingar verði til hagsbóta fyrir lögreglu í landinu öllu og um leið fyrir almenning. Síðustu breytingar á skipulagi lögreglu voru gerðar fyrir rúmum tíu árum síðan og nú er tími til að taka næsta skref. Verkefni lögreglu hafa breyst, samfélagið hefur breyst og við þurfum að styrkja embættin til framtíðar. Með þessu verða til öflugri lögregluembætti á landinu öllu sem geta betur tekist á við breyttan veruleika, bæði innanlands og á alþjóðavísu,“ segir dómsmálaráðherra.
Breytingarnar eiga ekki að verða til þess að starfsfólki eða lögreglustöðvum fækki.
„Þvert á móti er það áfram skýr vilji minn að efla löggæslu og halda áfram að fjölga lögreglumönnum. Markmiðið er skýrt; að til verði stærri og sterkari embætti“ segir ráðherra.
Áhersla á samráð við lögregluna
Ráðherra leggur mikla áherslu á náið samráð í tengslum við skipulagsbreytingarnar. Af þeirri ástæður hefur verið skipaður samráðshópur sem gegnir lykilhlutverki við útfærslu þeirra.
Í hópnum eiga sæti Drífa Kristín Sigurðardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu löggæslumála í dómsmálaráðuneytinu, Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, Halla Bergþóra Björnsdóttir, ríkislögreglustjóri, Grímur Hergeirsson, formaður Lögreglustjórafélags Íslands og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna.
„Þessar breytingar verða unnar í samráði og samtali við lögregluna. Ég reiði mig á gott samstarf við þennan hóp og við munum vera í þéttu samtali við lögregluráð á meðan vinnan stendur yfir,“ segir ráðherra.
Á næstu vikum heimsækir ráðherra öll lögregluembætti landsins til að kynna áformin nánar, ræða við starfsfólk og hlusta á sjónarmið þess. Fyrsta heimsóknin verður á morgun til lögreglunnar á Austurlandi.
Sterk embætti til að takast á við breyttan veruleika
Núverandi skipulag lögreglu byggir að stórum hluta á breytingum sem tóku gildi árið 2015 þegar embættum var fækkað og starfsemi lögreglu endurskipulögð. Frá þeim tíma hafa verkefni lögreglu þróast verulega. Afbrot verða sífellt flóknari og baráttan við skipulagða brotastarfsemi kallar á aukna samhæfingu milli embætta og sérhæfingu starfsfólks.
Með stærri embættum er stefnt að því að styrkja faglegt bakland, efla sérhæfingu og bæta getu lögreglu til að mæta þessum áskorunum.