28 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Ungt fólk ræðir framtíð varnar- og öryggismála á málþingi í Norræna húsinu

{image.Description}
Nordic Future Dialogue 2055

Miðvikudaginn 4. júní nk. stendur YATA Ísland, félag ungs fólks um öryggis- og varnarmál, í samstarfi við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fyrir málþingi í Norræna húsinu undir yfirskriftinni Nordic Futures Dialogue 2055. Málþingið stendur frá kl. 9:30–13:00 og mun leiða saman ungt fólk, sérfræðinga og fulltrúa stjórnvalda til umræðu um framtíðarþróun varnar- og öryggismála á Norðurlöndum.

Málþingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 18–35 ára sem hefur áhuga á varnar- og öryggismálum. Skráning fer fram og stendur til lok mánudags 2. júní.

Markmið málþingsins er að skapa vettvang fyrir ungt fólk til að koma sjónarmiðum sínum og hugmyndum á framfæri um þróun öryggismála á Norðurlöndum, með sérstakri áherslu á framtíðarsýn, áhættumat og áfallaþol samfélaga gagnvart nýjum og breyttum áskorunum.

Á dagskrá verða pallborðsumræður um þróun og framtíð varnar- og öryggismála frá sjónarhóli ungs fólks, auk vinnustofu þar sem þátttakendur munu meðal annars ræða nýjar öryggisógnir, framtíð varnarsamstarfs á Norðurlöndum og leiðir til að efla samfélagslegt áfallaþol og viðbúnað til framtíðar.

Málþingið fer fram sem hluti af samstarfi innan norræns samstarfsvettvangs stjórnvalda á sviði stefnumótandi framtíðarsýnar og langtímagreininga í varnar- og öryggismálum. Markmið samstarfsins er að efla sameiginlega stöðuvitund Norðurlandanna gagnvart breyttu öryggisumhverfi og stuðla að langtímasýn í stefnumótun á sviði varnar- og öryggismála.

Með málþinginu er leitast við að efla þátttöku ungs fólks í stefnumótandi umræðu um varnar- og öryggismál og stuðla að því að sjónarmið komandi kynslóða fái aukið vægi í stefnumótun og framtíðarsýn.

Dagskrá:

09:30-09:40 Opnun málþings

09:40-09:50 Erindi: What do we mean by Strategic Shocks and Foresight?

09:50-10:30 Pallborðsumræður: Perspectives on Future Risks to Nordic Security and Defense

10:30-11:45 Hópvinna
    Borð 1: Loftslagsbreytingar, alþjóðleg valdabarátta, umbreytingar í efnahag
    Borð 2: Ójafnrétti, lýðfræðilegar þvinganir, tæknilegar framfarir
    Borð 3: Ein í Norðrinu: Alþjóðleg valdabarátta, ójafnrétti og óvissa stjórnhátta
    Borð 4: Hrun AMOC kerfisins, orkusjálfstæði og breytt loftslag
    Borð 5: Að vera viðbúin krísu, norræn samstaða, viðbúnaður almennings
    Borð 6: Tæknilegar framfarir, alþjóðleg samkeppni, stjórnhættir

11:45-12:15 Endurgjöf og umræður

12:15-12:30 Lokaorð