29 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Föstudagspóstur 29. maí 2026

Heil og sæl,

í gær samþykkti Alþingi þingsályktun nr. 14/157 um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan mun fara fram þann 29. ágúst næstkomandi og eftirfarandi spurning verður borin upp:

"Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?"

  • Já.
  • Nei.

Í ljósi þess hefur upplýsingasíða utanríkisráðuneytisins um þjóðaratkvæðagreiðsluna þann 29. ágúst 2026 verið uppfærð, en þar má finna ýmis gögn og upplýsingar sem liggja til grundvallar umræðu og umfjöllun um málefnið. Einnig má finna þar efni frá aðildarviðræðum Íslands að ESB sem fram fóru árin 2009 - 2013 og ýmislegt fleira.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði í vikunni með bandarísku öldungadeildarþingkonunum Lisu Murkowski, og Catherine Cortez-Masto. Öldungadeildarþingkonurnar komu til Íslands til þess að kynna sér stefnu íslenskra stjórnvalda í málefnum norðurslóða og ræða samskipti Íslands og Bandaríkjanna. 

 

 

Utanríkisráðherra sótti fund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins sem fór fram í Helsingborg þann 22. júní 2026. Atlantshafstengslin, aukin framlög til varnarmála, jafnari byrðaskipting bandalagsríkja og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu voru meðal helstu umræðuefna á fundinum.

 

 

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, flutti opnunarerindi á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands sem ber heitið ACONA Reykjavík, en ráðstefnan fór fram í Veröld húsi Vigdísar þann 22. maí s.l. Á ráðstefnunni var lögð áherslu á mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu, traust og samtals á tímum aukinnar spennu og óvissu í varnar-, öryggis-, og afvopnunarmálum.

 

 

Utanríkisráðherra leit við á fyrsta fund nýrrar stjórnar GRÓ - Þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu nýverið. Nýr stjórnarformaður GRÓ er Ólafur Stephensen, einnig eiga sæti í stjórninni Halla Jónsdóttir, Ragnar Schram, Sæunn Stefánsdóttir og Antonio De Sousa Abreu. 

 

 

Berlín

Auðunn Atlason, sendiherra okkar í Berlín, fundaði í vikunni með þingmönnum neðrideildar þýska þjóðþingsins, Bundestag.

 

 

Svo kom Háskólakórinn í heimsókn og lauk ferð sinni um Pólland og Þýskaland með tónleikum í Himmelfahrt-kirkjunni í Berlín.

 

 

Sendiherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í Berlín funduðu með forsætisráðherra sambandslandsins Schleswig-Holstein um miðja síðustu viku. 

 

 

 

Brussel

Á fundi EES-ráðsins í Brussel á miðvikudaginn lagði Ísland áherslu á sérstöðu sína með tilliti til millilandaflugs og viðskiptakerfis með losunarheimildir, auk þess að ítreka andstöðu við verndaraðgerðir ESB gagnvart járnblendi. Einnig áttu EFTA-ríkin pólitískt samráð við Kaja Kallas, utanríkismálastjóra Evrópusambandsins, um stöðu mála í Úkraínu, Mið-Austurlöndum og á norðurslóðum. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, sótti fundinn.

 

Sérstakur ráðgjafahópur Norðurlanda og Eystrasaltsríkja (e. NB8 High-Level Advisory Group) var í Brussel í síðustu viku. Sendiherra Íslands í Brussel, Stefán Haukur Jóhannesson er fulltrúi Íslands í hópnum ásamt Högna Kristjánssyni, sendiherra Íslands í Osló. Hópurinn var settur á laggirnar fyrir 2 árum til þess að veita Úkraínu liðsinni vegna aðildarumsóknar að Evrópusambandinu. Hópurinn kom saman til þess að öðlast betri innsýn í sjónarmið stofnana Evrópusambandsins og aðildarríkja þess til þess að veita úkraínskum stjórnvöldum markvissari ráðgjöf nú þegar aðildarferli þeirra er að þróast úr rýni yfir í samningaviðræður. 

Í Brussel áttu þau fund með sendiherra Úkraínu gagnvart Evrópusambandinu, Vsevolod Chensov, og fulltrúum stækkunarskrifstofu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Í lok ferðarinnar fundaði hópurinn með Taras Kachka, varaforsætisráðherra Úkraínu og bauð Stefán Haukur, sendiherra, til móttöku í embættisbústaðnum í Brussel. 

 

 

Fulltrúar Landsvirkjunar heimsóttu sendiráðið í Brussel í síðustu viku og spjölluðu við starfsfólk sendiráðsins um EES samstarfið, starfsemi sendiráðsins og áherslur Íslands í hagsmunagæslu gagnvart Evrópusambandinu. 

 

 

Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Ísland var meðflutningsaðili ályktunar sem felur í sér stuðning stofnunarinnar við niðurstöðu Alþjóðadómstólsins í Haag í fyrra um að ríkjum heims beri skylda til að takast á við loftslagsbreytingar. 141 ríki greiddi atkvæði með ályktuninni á allsherjarþinginu og var Ísland þar á meðal. Átta ríki voru á móti og 28 ríki sátu hjá. Ályktunin er ekki bindandi en úrskurður Alþjóðadómstólsins hefur hins vegar lagalegt gildi í sjálfu sér og hefur nú þegar verið lagður til grundvallar í dómsmálum víða um heim. 

 

Iceland 🇮🇸 is proud to have co-sponsored the resolution welcoming the AO of the ICJ on the obligations of States in respect of climate change, adopted yesterday at UNGA 🇺🇳

RESULT
In favor: 141
Against: 8
Abstain: 28 pic.twitter.com/Md9xuYHFi6

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) May 22, 2026

 

Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum, flutti sameiginlegt ákall Norðurlanda að Rússland dragi herafla sinn tafarlaust til baka úr Úkraínu og láti af árásum sínum á Úkraínu. Norðurlönd kröfðust þess að Rússland virði landamæri Úkraínu, sjálfstæði þess og að Rússland hugi að alþjóðlegum skyldum sínum.

 

Today at the #UNSC the Nordics renewed the call for Russia to end its aggression & immediately withdraw forces from Ukrainian territory, within its own internationally recognized borders, and meet its responsibilities as a permanent member of the SC

🇩🇰🇫🇮🇮🇸🇳🇴🇸🇪 #StandWithUkraine pic.twitter.com/jBsaUZy7ZA

— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) May 19, 2026

 

Fastanefnd Íslands gagnvart mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf

52. lotu Allsherjarúttektar Sameinuðu þjóðanna (Universal Periodic Review) lauk fyrir stuttu síðan. Lotan felur í sér heildarúttekt á stöðu mannréttindamála innan aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna og fer fram þrisvar á ári í tveggja vikna löngum fundarlotum. Ísland tekur virkan þátt í úttekt allra ríkja og leggur áherslu á þrjú meginmál í tilmælum sínum: afnám dauðarefsinga, jafnréttismál (þ.m.t. kyn- og frjósemisheilbrigði) og mannréttindi hinsegin fólks. Að þessu sinni voru 14 ríki tekin fyrir: Namibía, NÍger, Mósambík, Eistland, Paragvæ, Belgía, Danmörk, Palaú, Sómalía, Seychelles-eyjar, Salómónseyjar, Lettland, Síerra Leóne og Singapúr.

 

 

Freetown

Pálína Matthíasdóttir, deildarstjóri tvíhliða þróunarsamvinnu, sótti Síerra Leóne heim í síðustu viku og fór í vettvangsferðir til þess að skoða stöðu íslenskra þróunarsamvinnuverkefna þar í landi t.a.m formlega opnaði hún fæðingardeild og fistúludeild í Makeni héraðsspítalanum sem hafa nýlega verið gerðar upp. Þar að auki var heilsugæslan í Fadugu í Koinadugu-héraði einnig heimsótt. Ásdís Bjarnadóttir, forstöðumaður sendiskrifstofu Íslands í Freetown, og Kunle Adeneyi, fulltrúi Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) voru með í för.

 

 

 

Helsinki

Sendiherrahjónin okkar í Finnlandi, Harald Aspelund og Ásthildur Jónsdóttir, tóku á móti hópi nemenda á alþjóðabraut Helsinki Uniarts Theatre Academy, enþar á meðal voru nokkrir íslenskir nemendur.

 

Harald Aspelund, sendiherra, sótti einnig ársfund verkefna Uppbyggingarsjóðs EES í Eistlandi í vikunni og undirritaði nýtt lýðheilsuverkefni sjóðsins fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. 

 

Sendiherrahjónin tóku á móti hópi sérfræðinga Nordforsk, sem er norræn stofnun sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um menntun og rannsóknir. 

 

 

Kampala

Í tilefni af alþjóðlegum degi gegn fistúlu var birt sameiginleg grein eftir Hildigunni Engilbertsdóttur, forstöðumann sendiskrifstofu Íslands í Kampala, og Krstine Blokhus, fulltrúa Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna í Úganda. 

 

 

Fulltrúar sendiráðs Íslands í Kampala héldu fyrir skemmstu til Yumbe-héraðs í norðvesturhluta Úganda til að kynna sér viðgerðir og endurbætur á stórri vatnsveitu sem skemmdist í miklum flóðum fyrir tveimur árum. Ísland fjármagnar verkið en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) ábyrgist framkvæmdina. 

 

 

Kaupmannahöfn

Pétur Ásgeirsson, sendiherra okkar í Kaupmannahöfn, hélt fyrirlestur um íslensk málefni fyrir Rótarí-klúbbinn í Kaupmannahöfn fyrir stuttu síðan. Sendiherra fór stuttlega yfir sögu Íslands frá landnámi til dagsins í dag, fjallaði um stjórnmál, efnahagsmál, varnarmál, jafnréttismál og endaði á að skýra frá mögulegri umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. 

 

 

Sendiráðið okkar í Köben vekur athygli á því að það hyggst taka þátt í hönnunarhátíðinni 3daysofdesign sem haldin verður í þrettánda sinn í Kaupmannahöfn með það að markmiði að koma íslenskri hönnun á framfæri. Í ár mun Dögg Guðmundsdóttir, hönnuður, og fyrirtækið Dýpi setja upp sýningu í anddyri sendiráðsins. 

Í samstarfi við Hönnunarmiðstöð, Íslandsstofu, Dögg og Dýpi, mun sendiráðið halda tvo viðburði á listahátíðinni dagana 10-12. júní nk.

 

 

Lilongwe

Sendiráðið okkar í Lilongwe, Malaví, greindi frá því að þrír opnunarfundir í tengslum við grunnþjónustuverkefni Íslands og Malaví (e. Iceland-Malawi Basic Services Programme) voru haldnir í samstarfshéröðunum þremur, Machinga, Balaka og Salima. 

 

 

Starfsfólk sendiráðsins fóru í vettvangsferð ásamt starfsfólki Go Fund a Girl Child sjóðsins til þess að kynna sér stöðu verkefnisins Empower to Transform, sem er verkefni sem snýr að valdeflingu kvenna og stúlkna.

 

Svo fór starfsfólk sendiráðsins í vettvangsferð með Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna (WFP) til Mangochi og Nkhotakota-héraðanna, en þar er t.d. boðið upp á sjálfbærar og  skólamáltíðir sem gerðar eru úr matvælum sem ræktuð eru í héruðunum. 

 

 

Madríd

Í dag hefst bókmenntahátíðin í Madríd og hafa Norrænu sendiráðið ákveðið að sameina krafta sína og bjóða upp á sameiginlega dagskrá fulla af viðburðum í borginni. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Finlandia, España (@finlandiaenmadrid)

 

Sendiherra okkar í Madríd, Kristján Andri Stefánsson, sótti frumsýningu heimildarmyndarinnar „Seeker: Never Before" sem fjallar um afreksíþróttamann á Íslandi sem stendur frammi fyrir stórri áskorun. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Benedikt Bogason, forsæti Hæstaréttar Íslands, heimsótti Hæstarétt Spánar í Madríd í síðustu viku í fylgd með sendiherra. 

 



 


View this post on Instagram
 

A post shared by Embajada de Islandia en Madrid / Sendiráð Íslands í Madríd (@icelandinspain)

 

Nýja-Delí

Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fundaði með forsætisráðherrum Norðurlanda í Ósló. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, og Benedikt Höskuldsson, sendiherra Íslands í Nýju-Delí, sóttu fundinn fyrir Íslands hönd.

 

 

Ottawa

Auðbjörg Halldórsdóttir, sendiherra Íslands í Ottawa, var fulltrúi Íslands á fundi styrktaraðila UN WOMEN sem haldinn var í Ottawa, en Kanada tók að sér að hýsa fundinn í þetta skiptið og Randeep Sarai, ráðherra alþjóðlegra samstarfsverkefna, var meðal þátttakenda. 

Gaman er að greina frá því að Ísland hefur boðist til þess að hýsa fundinn í Reykjavík á næsta ári. 

 

 

Osló

Líkt og áður hefur komið fram var fundur forsætisráðherra Norðurlanda og forsætisráðherra Indlands haldinn í Osló fyrir stuttu síðan. Starfsfólk sendiráðsins okkar í Osló studdi við vinnuferð forsætisráðherra til landsins.

 

 

París

Yfirgripsmikil sýning á verkum Errós var opnuð í listaðmiðstöðinni FIAA í Le Mans í Frakklandi síðastliðinn föstudag. Á sýningunni eru um fimmtíu verk sem gefa sýningargestum tækifæri til að kynnast listamanninum. Erró er mjög virtur í Frakklandi og hefur búið þar og starfað síðan um miðja síðustu öld. Hann var sjálfur viðstaddur opnunina ásamt dóttur sinni Turu Milo, Danielle Kvaran, sýningarstjóra Listasafns Reykjavíkur, og Maríu Mjöll Jónsdóttur, sendiherra Íslands í París. 

Sýning á verkum Errós í Le Mans stendur yfir til 1. nóvember 2026.

 

 

Sendiráðið tók á móti góðum gestum í síðustu viku, en Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, sótti borgina heim ásamt starfsfólki ráðuneytisins. Þar hittu þau franska kollega sína sem eru ábyrgir fyrir húsnæðismálum og kynntu sér „Housing first" úrræði franskra stjórnvalda. 

María Mjöll Jónsdóttir, sendiherra, tók á móti hópnum í sendiráðsbústaðnum og kynnti starfsemi sendiráðsins í Frakklandi. 

 

 

Bragi Guðbrandsson og Rami Abou Jamous hlutu Norður-suður verðlaun Evrópuráðsins í Lissabon fyrir stuttu síðan fyrir framlag þeirra til mannréttinda, lýðræðis, réttarríkisins og aukins samtals og samstöðu milli ríkja norðurs og suðurs. Bragi Guðbrandsson tók við verðlaununum við hátíðlega viðhöfn í þinghúsinu í Lissabon að viðstöddum forseta Portúgals. Íslendingurinn, Bragi Guðbrandsson, hefur um árabil verið leiðandi afl í málefnum barna og barnaverndar á alþjóðavísu. 

 

 

Tókýó

Hreinn Pálsson, sendiherra okkar í Japan, fundaði með sendiherra og sérstökum erindreka Japans í norðurslóðamálum ásamt öðrum sendiherrum Norðurlanda. 

 

 

Svo fundaði sendiherra með fulltrúum japönsku landhelgisgæslunnar, en hún mun fljótlega senda skip til þess að heimsækja borgir í Norður-Ameríku og, meðal annars, Reykjavík í júlí!

 

Svo er það íslenska skyrið! Nýjar vörur Ísey Skyr eru komnar í matvörubúðir í Japan og sendiherra fékk að sjálfsögðu nokkrar skyrdósir. 

 

 

Varsjá

Nýr þáttur norræna hlaðvarpsins „Nordic Point" er kominn út en það er samstarfsverkefni norrænna sendiráða þar í borg! 

 

 

Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri, mætti til Sopot til þess að taka þátt í fundi Eystrasaltsráðsins. 

 

Jónsbók, íslensk gervigreindarlausn sem hönnuð er fyrir fyrirtæki, stofnanir og lögfræðinga, er nú aðgengileg pólskum notendum.

 

 

Friðrik Jónsson, sendiherra Íslands gagnvart Moldóvu með aðsetur í Varsjá, undirritaði í vikunni nýjan loftferðasamning við Moldóvu. Með samningnum er komið á ramma með reglum og skilyrðum fyrir mögulega og reglulega flugþjónustu milli ríkjanna. 

Hér má einnig sjá myndir af sendiherra afhenda forseta Moldóvu, Maia Sandu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands við hátiðlega athöfn í höfuðborg Moldóvu.

 

 

Vínarborg

Sendiráðið okkar í Vínarborg stendur fyrir samsýningu undir heitinu „Grüße aus Island“ með sex íslenskum listamönnum í samstarfi við Gallerí Fold. Opnun sýningarinnar verður á næstkomandi sunnudag 1. júní kl. 18 og stendur til 30. júní. 

 

 

Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands gagnvart Slóveníu með aðsetur í Vínarborg, undirritaði samkomulag um nýtt framkvæmdatímabil Uppbyggingarsjóðs EES 2021 - 2028 milli Íslands, Liechtenstein og Noregs, annars vegar, og Slóveníu, hins vegar, í síðustu viku. Með undirritun samkomulagsins er formlegt samstarf um nýtt sjóðstímabil hafið og lagður grunnur að verkefnum sem ætlað er að styðja við samfélagslega og efnahagslega þróun í Slóveníu á komandi árum. 

 

 

Meira verður það ekki í bili!

Bestu kveðjur, upplýsingadeild.