29 maí 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Opin ráðstefna um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum

{image.Description}

Fjármála- og efnahagsráðherra efnir til ráðstefnu í Hörpu 2. júní næstkomandi í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.

Á ráðstefnunni mun Catherine L. Mann formaður sérfræðingahópsins kynna niðurstöður skýrslunnar og taka þátt í pallborði. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, flytja ávarp. Þá mun Boris Vujcic, varabankastjóri evrópska seðlabankans, ávarpa ráðstefnuna. Umræða verður í tveimur pallborðum. Tinna Finnbogadóttir sendiráðunautur fjármála- og efnahagsráðuneytisins í sendiráðinu í Brussel verður fundarstjóri.

Greining frá alþjóðlegum hópi sérfræðinga

Í júní í fyrra fól fjármála- og efnahagsráðuneytið fjórum sérfræðingum að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Verkefni hópsins var að meta kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils í samanburði við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði, svo sem evrusvæðinu. Í skýrslunni er fjallað um áhrif ólíkra valkosta, meðal annars á peningastefnu, fjármálastöðugleika, gengissveiflum, verðbólgu og stöðu Íslands sem lítils opins hagkerfis. Skýrslan var kynnt á fundi ríkisstjórnar í morgun og verður birt síðar í dag.

Hópnum var stýrt af Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðingi OECD, sem situr í peningastefnunefnd Englandsbanka. Auk hennar sátu í hópnum Hilde Christiane Bjørnland, prófessor við Norska viðskiptaháskólann, Steinar Holden, prófessor við Háskólann í Osló, og Stijn Claessens, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri hagfræðisviðs Alþjóðagreiðslubankans, BIS, sem nú starfar við Yale-háskóla.

Ráðstefnan fer að mestu fram á íslensku* og er opin öllum en nauðsynlegt er að skrá sig.

Dagskrá ráðstefnunnar:

o      Opnunarávarp: Daði Már Kristófersson fjármála- og efnhagsráðherra.

o      Catherine L. Mann kynnir niðurstöðu skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum*.

o      Boris Vujcic varabankastjóri evrópska seðlabankans *

o      Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

o      Pallborð – Krónan, evran og framtíð gjaldmiðlamála á Íslandi*

      • Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra
      • Catherine L. Mann, einn skýrsluhöfunda og fyrrum aðalhafræðingur OECD.
      • Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri
      • Sigríður Benediktsdóttir lektor við Columbia-háskóla

o      Pallborð – Vinnumarkaður og samkeppnishæfni í breyttu gjaldmiðlaumhverfi  

      • Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
      • Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands
      • Gylfi Zoega prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands
      • Una Jónsdóttir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbanka Íslands

* Stjörnumerktir dagskrárliðir fara fram á ensku. Ráðstefnan verður tekin upp, textuð á íslensku og birt fljótlega á vef ráðuneytisins.