01 júní 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands laust til umsóknar
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2026. Umsóknarfrestur er til 22. júní næstkomandi.
Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu og rekur 13 starfsstöðvar, þar á meðal umdæmissjúkrahús Austurlands, heilsugæslustöðvar og sel og hjúkrunarheimili. Heilbrigðisumdæmi Austurlands þjónar sveitarfélögunum Vopnafjarðarhreppi, Fljótsdalshreppi, Múlaþingi og Fjarðabyggð. Þá annast sjúkrahúsið starfsnám í heilbrigðisvísindagreinum og starfar í nánum tengslum við skóla á sviði menntunar heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.