01 júní 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Fimm umsóknir um dómaraembætti
Þann 8. maí auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laust til umsóknar embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Umsóknarfrestur rann út 26. maí síðastliðinn og eru umsækjendur eftirtaldir:
- Erna Björt Árnadóttir aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness,
- Jón Stefán Björnsson aðstoðarmaður dómara við Héraðsdóm Reykjaness,
- Margrét Helga Kristínar Stefánsdóttir lögfræðingur hjá Umboðsmanni Alþingis,
- Sigmundur Guðmundsson lögmaður,
- Þorbjörg I. Jónsdóttir lögmaður.
Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara á allra næstu dögum. Stefnt er að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta eftir að umsögn dómnefndar berst ráðherra.