01 júní 2026

/

Forsætisráðuneytið

Verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði rædd á fundi Þjóðhagsráðs

Þjóðhagsráð kom saman til fundar í dag. Á dagskrá fundarins var samtal ríkisstjórnarinnar, Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA) um verðlagsþróun í samhengi við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

Á fundinum voru kynningar frá Seðlabanka Íslands um stöðu og horfur í efnahagsmálum og frá formanni stýrihóps stjórnvalda, ASÍ og SA.

Gögn frá fundi Þjóðhagsráðs