02 júní 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Beint streymi frá ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum
Fjármála- og efnahagsráðherra
efnir til ráðstefnu í Hörpu í dag kl. 14-17 í Silfurbergi í Hörpu í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.
Streymt verður beint frá ráðstefnunni.
Dagskrá ráðstefnunnar:
o Opnunarávarp: Daði Már Kristófersson fjármála- og efnhagsráðherra.
o Catherine L. Mann kynnir niðurstöðu skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum*.
o Boris Vujcic varabankastjóri evrópska seðlabankans *
o Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
o Pallborð – Krónan, evran og framtíð gjaldmiðlamála á Íslandi*
- Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra
- Catherine L. Mann, einn skýrsluhöfunda og fyrrum aðalhafræðingur OECD.
- Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri
- Sigríður Benediktsdóttir lektor við Columbia-háskóla
o Pallborð – Vinnumarkaður og samkeppnishæfni í breyttu gjaldmiðlaumhverfi
- Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
- Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands
- Gylfi Zoega prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands
- Una Jónsdóttir forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans
* Stjörnumerktir dagskrárliðir fara fram á ensku. Ráðstefnan verður tekin upp, textuð á íslensku og birt fljótlega á vef ráðuneytisins.