02 júní 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Drög að nýjum hjúskaparlögum birt í samráðsgátt

{image.Description}
Drög að nýjum hjúskaparlögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.

Sifjalaganefnd hefur skilað dómsmálaráðherra drögum að tveimur lagafrumvörpum. Annars vegar eru þetta drög að frumvarpi til nýrra hjúskaparlaga og hins vegar drög að frumvarpi til breytinga á barnalögum. 

Stefnt er að því að kynna síðanefndu drögin síðar á þessu ári en drög að nýjum hjúskaparlögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Þar gefst tækifæri til að koma að umsögnum og athugasemdum sem haft verður hliðsjón af við frekari vinnslu frumvarpsins í ráðuneytinu. Drögin er hægt að nálgast hér.

Sérstakar lögskilnaðarástæður verði felldar brott

Breytingar sem sifjalaganefnd leggur til snúa meðal annars að því að gera maka kleift að óska lögskilnaðar án þess að tilgreina ástæða. Um leið eru felldar brott sérstakar lögskilnaðarástæður, svo sem vegna hjúskaparbrots og ofbeldis. Með einfaldari skilnaðarskilyrðum leggur nefndin til að sýslumanni verði alfarið falið að veita leyfi til skilnaðar og horfið frá því að dómstólar leysi úr ágreiningsmálum um skilnað.

Lögð eru til skýrari ákvæði um fjárskipti milli hjóna. Ein tillagan er sú að almennt sé gert ráð fyrir að maki geti krafist þess að lífeyrisréttindi, sem myndast með greiðslu lágmarksiðgjalds, komi ekki undir fjárskipti vegna skilnaðar en önnur lífeyrisréttindi komi til fjárskipta.  Þá eru einnig lagðar til breytingar á ákvæðum um framfærsluskyldu hjóna, skýrari ákvæði um samninga milli hjóna sem og breytingar á hjónavígsluskilyrðum, hjónavígslu og ógildingu hjúskapar.

Eiga að stuðla að réttaröryggi fyrir þolendur heimilisofbeldis

Þegar breytingar á hjúskaparlögum voru samþykktar á Alþingi þann 15. júní 2022,  var kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði að ákvæði hjúskaparlaga og framkvæmd þeirra skyldu endurskoðuð innan tveggja ára frá samþykkt laganna.

Umræddar breytingar tóku gildi 1. júlí 2023 en markmið frumvarpsins var  meðal annars að styrkja stöðu þolenda heimilisofbeldis og einfalda skilnaðarferli fyrir hjón sem væru sammála um að enda hjúskap sinn. Við meðferð þess hjá Alþingi tók allsherjar- og menntamálanefnd það fram í nefndaráliti sínu að þörf væri á heildarendurskoðun á lögum sem lúta að hjúskap til að stuðla að fullnægjandi réttaröryggi fyrir þolendur heimilisofbeldis. 

Sifjalaganefnd var skipuð af dómsmálaráðherra árið 2023 og lauk störfum fyrr á þessu ári. Hún var þannig skipuð:

  • Hrefna Friðriksdóttir, formaður, án tilnefningar.
  • Valborg Þ. Snævarr, tilnefnd af Lögmannafélagi Íslands. (Sigurður G. Guðjónsson til vara).
  • Óskar Sturluson, tilnefndur af Sýslumannaráði. (Arndís Soffía Sigurðardóttir til vara).