02 júní 2026
/
Heilbrigðisráðuneytið
Nýr langtímasamningur við Ljósið undirritaður
Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Erna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Ljóssins undirrituðu í dag samning til fjögurra ára um endurhæfingarþjónustu fyrir einstaklinga sem greinst hafa með krabbamein. Hámarksfjárhæð samningsins er rúmar 487 milljónir króna á ári. Um er að ræða þverfaglega og heildstæða endurhæfingarþjónustu sem sérstaklega hefur verið aðlöguð að þörfum krabbameinsgreindra einstaklinga. Samningurinn byggir á blöndu af föstum greiðslum og greiðslum fyrir unnin verk samkvæmt gjaldskrá og leggur jafnframt ríka áherslu á gæði þjónustunnar og markvissa eftirfylgni. Endurhæfingarþjónusta Ljóssins verður skjólstæðingum áfram að kostnaðarlausu.
Í nýjum samningi er sérstök áhersla lögð á að efla aðgengi einstaklinga á landsbyggðinni að sérhæfðri endurhæfingarþjónustu, meðal annars með aukinni fjarþjónustu og fræðslu til heilbrigðisstarfsfólks í heimabyggð. Samningurinn tekur mið af aukningu í krabbameinsgreiningum samkvæmt spá Krabbameinsfélags Íslands um þróun nýgengis krabbameina á komandi árum. Gert er ráð fyrir að á bilinu 550 til 650 einstaklingar innritist árlega í þjónustu Ljóssins á samningstímanum.
Ljósið var formlega stofnað í janúar árið 2006. Markmið þess frá upphafi hefur verið að sinna endurhæfingu og veita stuðning þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra. Ljósið er viðurkennd heilbrigðisstofnun samkvæmt skilgreiningu laga og heyrir undir eftirlit Embættis landlæknis. Þjónusta Ljóssins er þverfagleg og einstaklingsmiðuð og felst m.a. í iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun, sálfræðiþjónustu, næringarráðgjöf og félagslegri virkni.
Fyrstu árin í starfsemi Ljóssins voru þjónustusamningar um starfsemina við Tryggingastofnun ríkisins og einnig voru um tíma samningar milli Ljóssins og ráðuneyta félags- heilbrigðis- og menntamála. Frá árinu 2011 voru í gildi samningar milli Ljóssins og Vinnumálastofnunar ásamt ýmsum öðrum samningum um endurhæfingar.
Árið 2020 var fyrst skrifað undir þriggja ára þjónustusamning við Ljósið sem gilti til ársloka 2023, fjárhæð þess samnings var 220 milljónir. Frá því að skrifað var undir samninginn 2020 hefur þjónustuþegum Ljóssins fjölgað verulega og kostnaður við veitta þjónustu þar með aukist. Frá árslokum 2023 hefur ekki verið í gildi langtímasamningur við Ljósið en með nýja samningnum er þjónustan nú tryggð til fjögurra ára.
Við undirritunina lýsti Alma Möller yfir sérstakri ánægju yfir því að kominn væri á langtímasamningur við Ljósið. Virði þeirrar þjónustu sem veitt sé í Ljósinu hafi fyrir löngu sannað sig. Árangurinn sé góður og ánægja með þjónustuna meðal skjólstæðinga Ljóssins mikil. Rekstur Ljóssins hafi ekki verið nægilega fyrirsjáanlegur undanfarin ár en nú hafi nægjanlegt fjármagn til þjónustu Ljóssins verið tryggt og því loks mögulegt að gera langtímasamning um þjónustuna.