03 júní 2026

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Niðurstaða úthlutunar á tollkvótum á landbúnaðarvörum sem taka gildi 1. júlí 2026

{image.Description}

Nýverið lauk úthlutunarferli tollkvóta á landbúnaðarvörum sem taka allir gildi 1. júlí nk. og gilda ýmist í 6 eða 12 mánuði. Í flestum tilvikum var umfram eftirspurn eftir tollkvótum og var þeim því úthlutað með útboði. Um er að ræða tollkvóta sem veita heimild til innflutnings á kjöti, unnum kjötvörum, ostum og plöntum án tolla eða á lægri tollum en tollskrá segir til um. Um niðurstöður hverrar úthlutunar má lesa að neðan.

Niðurstöður úthlutunar á ESB tollkvótum

Föstudaginn 15. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum frá Evrópusambandinu samkvæmt reglugerð nr. 1248/2025 fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 29 tilboð í tollkvótann.

Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 1.906 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 635 kr./kg.


Vörulýsing

Tollkvóta úthlutað (kg)

Fjöldi samþykktra tilboða

Jafnvægisverð (kr./kg)

Nautgripakjöt

348.000

12

790

Svínakjöt

350.000

7

408

Alifuglakjöt

428.000

9

635

Alifuglakjöt *

100.000

3

540

Reykt og saltað kjöt

50.000

11

407

Sérostur **

115.000

10

-

Ostur

190.000

9

951

Pylsur

125.000

9

677

Unnar kjötvörur

200.000

12

901

(*) alifuglakjöt lífrænt ræktað/lausagöngu, í vörulið úr 0207

(**) skráð í samræmi við reglugerð ráðsins (EB) nr. 1151/2012 um vernd landfræðilegra merkinga og uppruna landbúnaðarafurða og matvæla. Úthlutað með hlutkesti.

 

 

Niðurstöður úthlutunar á WTO tollkvótum

Föstudaginn 15. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarafurðum á grundvelli aðildarsamnings Íslands að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (e. WTO) með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993, samkvæmt reglugerð nr. 376/2026 fyrir tímabilið 1. júlí 2026 til 30. júní 2027. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 16 tilboð í tollkvótann.

Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 912 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 279 kr./kg.

 


Vörulýsing

Tollkvóta úthlutað (kg)

Fjöldi samþ. tilboða

Jafnvægisverð (kr./kg)

Nautgripakjöt

95.000

6

900

Svínakjöt

64.000

3

0

Kinda- eða geitakjöt

345.000

5

7

Kjöt af alifuglum

59.000

2

350

Smjör og önnur fita

53.000

5

0

Ostur og ystingur

119.000

5

651

Fuglsegg

76.000

3

111

Unnar kjötvörur

86.000

6

702

Hross

15.000

1

1

 

 

Niðurstöður úthlutunar á EFTA tollkvótum

Föstudaginn 15. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í EFTA tollkvóta vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Noregi og Sviss á grundvelli stofnsáttmála EFTA ríkjanna, með vísan til reglugerðar nr. 375/2026 fyrir tímabilið 1. júlí 2026 til 30. júní 2027. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 4 tilboð í tollkvótann.

Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar var úthlutað að fullu. Samanlagt var 25 tonna tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 0,6 kr./kg.


Vörulýsing

 

Tollkvóta úthlutað (kg)

Fjöldi samþ. tilboða

Jafnvægisverð (kr./kg)

Ostur og ystingur

 

15.000

3

1

Nautgripakjöt

 

10.000

2

0

 

 

Niðurstöður úthlutunar á tollkvótum fyrir plöntur og blóm

Föstudaginn 15. maí síðastliðinn rann út tilboðsfrestur í tollkvóta vegna innflutnings á blómum með vísan til 65. gr. búvörulaga nr. 99/1993 og til reglugerðar um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl. nr. 1247/2025 fyrir tímabilið 1. júlí til 31. desember 2026. Útboðsgjald tollkvóta ræðst af lægsta samþykkta tilboði í hverjum vörulið, þ.e. jafnvægisverði. Tilboð eru samþykkt frá hæsta boði til þess lægsta innan þess magns tollkvóta sem í boði er. Samtals bárust 4 tilboð í tollkvótann.

Magni tollkvóta sem auglýst var til umsóknar ekki úthlutað að fullu, en tollkvótum fyrir blómstrandi plöntur og pottaplöntur var úthlutað á grundvelli umsókna. Samanlagt var 127.250 stk. tollkvóta úthlutað og var meðalútboðsgjald 51,7 kr./stk.

 


Vörulýsing

Tollkvóta úthlutað (stk.)

Fjöldi samþ. tilboða / umsókna

Jafnvægisverð (kr./stk.)

Blómstrandi plöntur

1.000

1

-

Pottaplöntur

1.000

1

-

Tryggðarblóm

6.500

2

64

Afskorin blóm

118.750

4

51