04 júní 2026
/
Atvinnuvegaráðuneytið
Búvörusamningar framlengdir
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands, hafa undirritað samkomulag um að framlengja gildandi samninga um starfsskilyrði garðyrkju, nautgriparæktar, sauðfjárræktar og almenn starfsskilyrði landbúnaðarins (búvörusamninga).
Samningarnir hefðu að óbreyttu runnið út í lok þessa árs en nú hefur verið samið um að framlengja þá um eitt ár þannig að gildistíminn lengist til ársloka 2027. Fyrirkomulagið er að mestu óbreytt, að því frátöldu að fallið var frá því að draga árleg framlög saman um 1% á árinu 2027, eins og gert var árin 2022-2026. Það svigrúm sem skapast með því, tæpar 200 milljónir króna, verður nýtt til að auka framlög til nýliðunarstuðnings í landbúnaði og til fjárfestingastuðnings í nautgripa- og sauðfjárrækt.
Tilgangur framlengingarinnar er að skapa frekara svigrúm til viðræðna um það fyrirkomulag starfsskilyrða landbúnaðarins sem tekur við í ársbyrjun 2028. Undirbúningur þeirra hefur staðið um nokkurt skeið. Af hálfu stjórnvalda verður þar einkum tekið mið af þeim áherslum sem finna má í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar, landbúnaðarstefnu sem Alþingi samþykkti 2023 og áunninni reynslu af núverandi kerfi. Samhliða samkomulaginu var jafnframt undirrituð viðræðuáætlun til að ramma verkefnið frekar inn. Hún var undirrituð af Jarþrúði Ásmundsdóttur sem leiðir viðræðurnar fyrir hönd stjórnvalda og Trausta Hjálmarssyni, formanni Bændasamtaka Íslands.