05 júní 2026

/

Innviðaráðuneytið

Eyjólfur hífður úr sjó í kennslustund í Slysavarnaskóla sjómanna

{image.Description}
Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu, Bogi Þorsteinsson skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Stefán Smári Skúlason kennari við Slysavarnaskóla sjómanna.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu undirgengust í dag hluta þeirrar þjálfunar sem sjómenn þurfa að takast á hendur til að geta verið lögskráðir í áhöfn skips. Þeir tóku þátt í kennslustund með nemendum um borð í Sæbjörgu, skólaskipi Slysavarnaskóla sjómanna, sem Slysavarnafélagið Landsbjörg rekur. Eitt megin verkefni þeirra var að stökkva í sjóinn á ytri höfninni í Reykjavík og vera hífðir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar.

Á síðustu áratugum hefur með auknum kröfum, markvissum öryggisaðgerðum, bættri menntun sjófarenda, tækniframförum og öflugu leitar- og björgunarkerfi tekist að draga stórlega úr slysum og dauðsföllum á sjó. Á árum áður lést fjöldi sjómanna á ári hverju en á síðustu tuttugu árum er meðalfjöldi dauðsfalla eitt á ári. Við þetta má bæta að um nokkurra ára skeið á síðasta áratug tókst að koma í veg fyrir dauðsföll á sjó

„Það var magnað að taka þátt í þessari mikilvægu æfingu í Slysavarnaskólanum og fylgjast með einstöku fagfólki að störfum.  Við höfum náð ákaflega góðum árangri við að fækka slysum og dauðsföllum á sjó og Slysavarnaskólinn á sinn mikilvæga þátt í þeim árangri. Við megum þakka fyrir að hafa skapað sterka öryggismenningu á sjó með samstilltu átaki einstaklinga, félagasamtaka og stjórnvalda – og ekki síst sjómanna sjálfra. Þetta var mikil lífsreynsla og nauðsynleg innsýn í námið í Slysavarnaskólanum,” segir Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.

Reynsla Íslands nýtist á alþjóðavettvangi

Ísland hefur verið í fararbroddi við að berjast fyrir aðgerðum í öryggis sjómanna á fiskiskipum um allan heim. Það hefur m.a. verið gert með því að hvetja þjóðir heims til að undirrita Höfðaborgarsamþykktina um öryggi fiskiskipa (e. Cape Town Agreement). Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) stendur að samþykktinni en höfuðmarkmið hennar er að fækka slysum á sjó með því að samræma kröfur og bæta vinnuskilyrði sjómanna. 

Höfðaborgarsamþykktin mun taka formlega gildi á fyrri hluta næsta árs en skilyrði fyrir gildistöku hennar voru uppfyllt fyrr á árinu, m.a. fyrir tilstilli og aðkomu íslenskra stjórnvalda.