05 júní 2026
/
Utanríkisráðuneytið
Föstudagspóstur 5. júní 2026
Heil og sæl.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fundaði með Beate Meinl-Reislinger, utanríkis- og Evrópumálaráðherra Austurríkis, í Reykjavík í dag. Tvíhliða samband Íslands og Austurríkis, Evrópumál, norðurslóðir, innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og staða mála í Mið-Austurlöndum voru í brennidepli á fundi þeirra.
Juraj Blanár, utanríkis- og Evrópumálaráðherra Slóvakíu, sótti einnig Ísland heim í vikunni og fundaði með Þorgerði Katrínu. Á fundi þeirra ræddu þau tvíhliða samskipti Íslands og Slóvakíu, málefni Úkraínu, Evrópumál og tækifæri til aukins samstarfs við Ísland t.a.m. í nýtingu jarðvarma og aukins samstarfs á háskólastigi, en fjölmargir íslenskir nemendur hafa um árabil sótt sér heilbrigðismenntun í Slóvakíu.
View this post on Instagram
Hermálanefnd Atlantshafsbandalagsins heimsótti Ísland í vikunni til að kynnast aðstæðum og framlagi Íslands til sameiginlegra varna bandalagsins. Í heimsókn sinni til Íslands fékk hermálanefndin ítarlega kynningu á varnarmálum Íslands og innlendu samstarfi á sviði öryggis- og varnarmála, rekstri íslenska loftvarnarkerfsins og framkvæmd varnartengdra verkefna á öryggissvæðinu í Keflavík.
Ráðherra skrifaði um Evrópumálin og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB í Morgunblaðinu þann 2. júní sl.
Berlín
Í dag tók sendiráðið á móti hóp frá Sigurður-Demetz tónlistarskólanum. Auðunn Atlason, sendiherra, ræddi við þau um hlutverk utanríkisþjónustunnar og fór með þau um stuttan túr um sameiginlega sendiráðsbyggingu sendiráða Norðurlanda, Fellashaus.
Freetown
Sendiráðið fór í vettvangsferð í Koingadugu, Falaba og Karene-héröð þar sem samstarfsverkefni Íslands, Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna og ríkisstjórnar Síerra Leóne voru skoðuð.
Helsinki
Harald Aspelund, sendiherra Íslands í Helsinki, heimsótti Listasafnið í Turku þar sem hann hlaut þann heiður að fá að opna formlega þrjár nýjar sýningar: „Millefleurs" eftir íslenska listamanninn Eggert Pétursson, „The Path" eftir Pia Sirén og „State of Alert“ eftir Pasi Autio. Í ávarpi sínu lagði sendiherra áherslu á mikilvægi menningarsamstarfs og sterk tengsl milli Íslands og Finnlands.
Kaupmannahöfn
Mánudaginn 28. maí sl. hélt sænska sendiráðið upplýsingafund með Michael Hyldgaard hershöfðingja, æðsta yfirmanni danska heraflans. Hann fór yfir uppbyggingu danska hersins, varnir Grænlands, aukið eftirlit á norðurslóðum og samstarf Norðurlandanna, með áherslu á aukna samræmingu í varnar- og öryggismálum. Fundinn sátu sendiherrar Svíþjóðar, Noregs og Íslands, auk staðgengils sendiherra Finnlands.
London
Sendiráð Íslands í London hélt í síðustu viku fund og móttöku fyrir kjörræðismenn Íslands þar í landi þar sem farið var yfir stöðu mála á Íslandi, komandi verkefni og áskoranir. Kjörræðismennirnir færðu einnig Sturlu Sigurjónssyni, sendiherra, fallega kveðjugjöf, listaverk eftir íslensku listakonuna Kristjönu S. Williams.
Madríd
Ísland tók þátt í fimmta ráðherrafundinum um femíníska utanríkisstefnu sem haldinn var 2.–3. júní í utanríkisráðuneyti Spánar í Madríd. Auður Edda Jökulsdóttir, sérstakur erindreki jafnréttismála í utanríkisráðuneytinu, stýrði hliðarviðburði um hlutverk karla og drengja í femínískri utanríkisstefnu og kynnti í kjölfarið Barbershop-verkfærakistuna, verkefni sem Ísland hefur unnið í samstarfi við UN Women.
París
Sendiráð Íslands í Frakklandi tók þátt í bókmenntanótt í París (La Nuit de la littérature) 30. maí sl. í menningarmiðstöð Írlands. Fulltrúi Íslands á viðburðinum, rithöfundurinn Bergþóra Snæbjörnsdóttir, kynnti nýlega þýdda skáldsögu sína La congrégation des magnifiques (Duft), tók þátt í viðtali, las úr verkinu og áritaði bækur.
Osló
Sendiráðsteymið okkar í Osló tók vel á móti Loga Má Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Þar opnaði ráðherra viðburðinn „Women in Kongesagas“ sem var skipulagður af íslenska sendiráðinuog UiO Scene Domus Bibliotheca.
Tókýó
Í tilefni af komu íslenska grænvísinda húðvörumerkisins „TARAMAR“ á japanskan markað var haldinn fjölmiðlaviðburður í íslenska sendiráðinu. Stofnandi vörumerkisins, Kristóberg Kristóbergsson, heiðursprófessor í matvælafræði við Háskóla Íslands, kom til Japans og kynnti hugmyndafræðina sem liggur að baki vörumerkisins.
Fastanefnd Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York
Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands, tók þátt í atkvæðagreiðslunni um næsta forseta allhersjarþingsins. Það verður spennandi að sjá hver hreppir stöðuna til næstu ára.
🗳️Election of the next President of the General Assembly is now underway. We look forward to working with the new President when the 81st Session of #UNGA begins in September #PGA81 @BangladeshUN1 @CyprusinUN pic.twitter.com/EIdn79mWn4
— Iceland at UN 🇮🇸 (@IcelandUN) June 2, 2026
Meira verður það ekki í bili!
Bestu kveðjur, upplýsingadeild.