05 júní 2026

/

Atvinnuvegaráðuneytið

Opnað fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslu jarðræktarstyrkja vegna kornræktar

{image.Description}

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um fyrirframgreiðslu jarðræktarstyrkja vegna kornræktar árið 2026.

Kornræktendur sem skila upplýsingum um sáningu korns í skýrsluhaldsforritið Jörð fyrir 15. júní 2026 og senda skýrsluna í Afurð geta sótt um fyrirframgreiðslu styrksins. Umsókn er stofnuð í Afurð.

Fyrirframgreiðslan nemur að jafnaði 25% af einingaverði jarðræktarstyrks á hektara samkvæmt viðmiðum fyrra árs. Fyrirframgreiðslur eru einungis greiddar vegna kornræktar og koma til frádráttar endanlegum jarðræktarstuðningi sem greiddur verður út í desember 2026.

Almennur umsóknarfrestur um jarðræktarstyrki og landgreiðslur er óbreyttur og rennur út 1. október 2026.