05 júní 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherra Austurríkis í heimsókn á Íslandi

{image.Description}
Beate Meinl-Reisinger hefur verið utanríkisráðherra Austurríkis frá því í mars í fyrra.

Tvíhliða samband Íslands og Austurríkis, Evrópumál, norðurslóðir, innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og staða mála í Mið-Austurlöndum voru í brennidepli á fundi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Beate Meinl-Reisinger, utanríkisráðherra Austurríkis, sem fram fór í utanríkisráðuneytinu í dag. Alþjóðasamstarf og málefni Sameinuðu þjóðanna komu einnig til umræðu en Meinl-Reisinger kom til Íslands frá New York þar sem hún var í fyrradag viðstödd þegar Austurríki var kosið til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna frá og með næstu áramótum.

Dagskrá austurríska utanríkisráðherrans í heimsókn hennar til Íslands er þétt. Hún heimsótti Alþingi í morgun þar sem hún fundaði með forseta Alþingis. Að því loknu hélt Meinl-Reisinger í utanríkisráðuneytið til fundar með utanríkisráðherra. Síðar um daginn átti hún fund með forsætisráðherra og í framhaldinu fund með forseta Íslands. Á morgun heimsækir utanríkisráðherra Austurríkis Orkuveituna á Hellisheiði, þar sem hún mun kynna sér starfsemi hennar og íslenskar lausnir á sviði endurnýjanlegrar orku og sjálfbærrar nýtingar auðlinda.

„Mér þótti afar vænt um að fá austurríska utanríkisráðherrrann í heimsókn hingað til Íslands og fundur okkar var gott tækifæri til að ræða brýn mál, bæði þær áskoranir sem við blasa í alþjóðamálum, en líka tvíhliða mál, samskipti Íslands og Austurríkis og möguleika á að dýpka samband okkar og efla. Þá var gagnlegt fyrir mig að geta rætt Evrópumál við hana en ég greindi henni frá þjóðaratkvæðagreiðslunni sem fram fer hér á landi 29. ágúst nk. um það hvort ráðist verði í aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Ég fann fyrir velvilja frá henni í þessum efnum og það veit á gott, að mínu mati,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.