09 júní 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Utanríkisráðuneytið
Ísland fullgildir valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks
Íslensk stjórnvöld hafa fullgilt valfrjálsa bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í bókuninni er kveðið á um heimild fatlaðs fólks til að beina kvörtunum vegna brota á samningnum til eftirlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
„Mikilvægt er að fatlað fólk hafi aðgang að alþjóðlegum kæruleiðum. Með fullgildingu bókunarinnar styrkjum við réttarstöðu fatlaðs fólks og undirstrikum mikilvægi þess að réttindi þess séu virt,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eftirlitsnefnd Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks getur tekið kvörtun til meðferðar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, en meðal annars er kannað hvort mál varði réttindi sem kveðið er á um í samningnum og hvort þegar hafi verið fullreynd þau úrræði sem eru í boði samkvæmt landslögum til að ná fram þeim réttindum, til dæmis með því að bera mál undir dómstóla.
Ef kvartanir uppfylla skilyrðin tekur nefndin þær til umfjöllunar og gefur út ráðgefandi álit. Í kjölfarið þurfa ríki að veita nefndinni upplýsingar um hvernig ætlunin er að bregðast við álitinu.
„Þetta eru tímamót sem við fögnum sérstaklega því sjaldan hefur verið mikilvægara en nú að standa vörð um jaðarsetta hópa í okkar samfélagi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisáðherra. „Mannréttindi tilheyra öllum, alls staðar, á öllum tímum. Að standa vörð um þessi réttindi er ekki einkamál ríkja, heldur sameiginleg ábyrgð alþjóðasamfélagsins.“
Alþingi samþykkti fyrstu landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks árið 2024 en þar var meðal annars kveðið á um að valfrjálsa bókunin yrði fullgild.