09 júní 2026

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Úthlutun styrkja til félagasamtaka í þágu farsældar barna 2026

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur úthlutað rúmum 43,3 m.kr. til 12 verkefna í þágu farsældar barna. Styrkirnir eru einsskiptis styrkir til íslenskra félagasamtaka og ætlaðir verkefnum sem styðja við innleiðingu laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu til ársins 2030.

Áherslusvið úthlutunar að þessu sinni voru:

  • Menntun
  • Frístundastarf
  • Forvarnir
  • Samfélagsleg virkni
  • Stuðningur og ráðgjöf

Alls bárust 60 umsóknir frá 42 félagasamtökum. Sótt var um rúmlega 233 m.kr. en til úthlutunar voru 45 m.kr.

Mikil fjölbreytni var meðal þeirra verkefna sem sótt var um styrk fyrir og greina má mikla grósku meðal félagasamtaka.

Umsóknir voru metnar út frá átta matsþáttum, meðal annars því hvort verkefnin styddu við farsældarlögin og menntastefnu, tengdust áherslusviðum úthlutunar, hefðu skýr markmið, raunhæfa framkvæmd og fjárhagsáætlun, skilgreinda mælikvarða um árangur og skýra ferla.

Eftirfarandi 12 verkefni hlutu styrk árið 2026:

  1. Styrkþegi: Gló stuðningsfélag
    Heiti verkefnis: Einhverf börn á leikskólaaldri
    Lýsing: Snemmtæk íhlutun og samþættur stuðningur fyrir einhverf börn á leikskólaaldri.
    Um verkefnið: Verkefnið byggir á samstarfi foreldra, leikskóla og fagfólks og miðar að því að fullmóta verklag sem styður einhverf börn í daglegu umhverfi þeirra, eykur öryggi, þátttöku og líkur á varanlegum framförum.
    Styrkupphæð: 3.500.000 kr.
  2. Styrkþegi: Körfuknattleiksdeild Hauka
    Heiti verkefnis: Stígum farsældarskref í körfunni
    Lýsing: Forvarnir og farsæld í íþróttastarfi barna.
    Um verkefnið: Verkefnið felur í sér innleiðingu heildstæðrar forvarnaráætlunar í körfuknattleiksstarfi, með skýru gæðakerfi, fræðslu fyrir þjálfara, virkri foreldrasamvinnu og markvissri eftirfylgni með börnum.
    Styrkupphæð: 5.000.000 kr.
  3. Styrkþegi: UN Women á Íslandi
    Heiti verkefnis: Jafningafræðsla gegn stafrænu ofbeldi
    Lýsing: Forvarnir og fræðsla fyrir ungmenni.
    Um verkefnið: Ungmennaráð UN Women þróar fræðslu um stafrænt ofbeldi fyrir ungmenni í grunn- og framhaldsskólum, félagsmiðstöðvum og á samfélagsmiðlum. Verkefnið byggir á jafningjafræðslu þar sem ungmenni fræða önnur ungmenni.
    Styrkupphæð: 3.000.000 kr.
  4. Styrkþegi: Barnaheill
    Heiti verkefnis: Ungmennaþing
    Lýsing: Samtal ungmenna um ofbeldi í nánum samböndum.
    Um verkefnið: Verkefnið felur í sér ungmennaþing víða um land þar sem ungt fólk ræðir kynferðisofbeldi og ofbeldi í nánum samböndum unglinga, þekkingu á heilbrigðum samböndum og leiðir til að efla forvarnir.
    Styrkupphæð: 4.500.000 kr.
  5. Styrkþegi: Ungmennafélagið Njarðvík
    Heiti verkefnis: Allir í körfu
    Lýsing: Aukið aðgengi barna á Ásbrú að skipulögðu íþróttastarfi.
    Um verkefnið: Verkefnið miðar að því að ryðja úr vegi hindrunum fyrir þátttöku barna á aldrinum 6–16 ára í körfubolta, meðal annars vegna kostnaðar, tungumála og samgangna.
    Styrkupphæð: 1.300.000 kr.
  6. Styrkþegi: Íþróttabandalag Reykjanesbæjar
    Heiti verkefnis: Hjarta Ásbrúar
    Lýsing: Farsældarmiðstöð fyrir börn og fjölskyldur.
    Um verkefnið: Verkefnið snýst um að starfrækja íþrótta- og félagstorg í Andrews Theater á Ásbrú þar sem börn og fjölskyldur geta tekið þátt í hreyfingu, skapandi starfi, samveru og stuðningi í aðgengilegu og óformlegu umhverfi.
    Styrkupphæð: 5.000.000 kr.
  7. Styrkþegi: Bergið Headspace
    Heiti verkefnis: Forvarnafræðsla í geðheilsu
    Lýsing: Geðheilsa, tilfinningalæsi og seigla ungmenna.
    Um verkefnið: Verkefnið felur í sér þróun og innleiðingu hagnýtrar vinnubókar fyrir ungmenni með áherslu á sjálfsumhyggju, heilbrigt sjálfsmat og tilfinningalæsi. Efnið verður nýtt í fræðslu- og vinnulotum í skólum.
    Styrkupphæð: 4.500.000 kr.
  8. Styrkþegi: Memm Play
    Heiti verkefnis: Hönd í hönd
    Lýsing: Opinn leikskóli og farsæld barna.
    Um verkefnið: Verkefnið styrkir tengsl Opna leikskólans Memm við fagfólk sem vinnur að farsæld barna, meðal annars heilsugæslu, þjónustumiðstöðvar og félagasamtök sem styðja fjölskyldur með ung börn.
    Styrkupphæð: 4.500.000 kr.
  9. Styrkþegi: Félag fósturforeldra
    Heiti verkefnis: Farsæld barna í fóstri
    Lýsing: Stuðningur, fræðsla og tengsl í fósturfjölskyldum.
    Um verkefnið: Verkefnið miðar að því að efla fósturforeldra í hlutverki sínu, auka aðgengi að jafningjastuðningi og fræðslu og styrkja tengsl barna í fóstri við önnur börn og ungmenni í sambærilegri stöðu.
    Styrkupphæð: 3.265.800 kr.
  10. Styrkþegi: Landssamtökin Þroskahjálp
    Heiti verkefnis: Fötluð börn og farsæld
    Lýsing: Réttindi, þjónusta og stuðningur við fjölskyldur fatlaðra barna.
    Um verkefnið: Verkefnið eykur þekkingu foreldra fatlaðra barna á réttindum, þjónustu og úrræðum samkvæmt farsældarlöggjöfinni, með sérstakri áherslu á fjölskyldur af erlendum uppruna.
    Styrkupphæð: 2.750.000 kr.
  11. Styrkþegi: Barnaheill
    Heiti verkefnis: Léttir
    Lýsing: Leiklistarsmiðjur fyrir börn sem hafa nýlega flust til landsins.
    Um verkefnið: Léttir er skapandi leiklistarsmiðja fyrir börn í móttökudeildum skóla. Verkefnið notar leiklist sem leið til að efla sjálfstraust, félagsfærni, tjáningu og þátttöku barna í nýju skóla- og samfélagsumhverfi.
    Styrkupphæð: 4.600.000 kr.
  12. Styrkþegi: Skátafélag Akraness
    Heiti verkefnis: Efling skátastarfs
    Lýsing: Tengsl, þátttaka og sterkt bakland í frístundastarfi.
    Um verkefnið: Verkefnið styrkir skátastarf á Akranesi með áherslu á foreldrasamfélag, sjálfboðaliða og aðstæður þar sem börn upplifa að þau tilheyri öruggu og uppbyggilegu samfélagi.
    Styrkupphæð: 1.400.000 kr.

Ráðuneytið óskar styrkþegum til hamingju og óskar þeim velfarnaðar við framkvæmd verkefnanna.