10 júní 2026
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Ráðuneytið gefur út leiðarvísi um örnám á háskólastigi
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hefur gefið út leiðarvísi um örnám á háskólastigi. Leiðarvísinum er ætlað að efla þróun, skipulag og framkvæmd örnáms á háskólastigi og styðja við útgáfu vottorða og viðurkenningu um slíkt nám.
Hvað er örnám?
Örnám er stutt nám sem auðveldar fólki að bæta við sig þekkingu á afmörkuðu sviði. Námið er byggt upp eins og annað háskólanám og lýtur sömu gæðakröfum. Örnám getur verið allt að 59 ECTS-einingum og er bæði á grunn- og framhaldsstigi. Örnám getur hentað mjög vel með vinnu og eykur hæfni fólks til þátttöku í atvinnulífi.
„Örnám getur skapað fólki ný og spennandi tækifæri til að bæta við sig þekkingu og hæfni með sveigjanlegum hætti, hvort heldur sem er samhliða starfi eða sem hluta af frekara háskólanámi. Leiðarvísirinn er góð viðbót fyrir háskólana okkar til að samræma og efla enn frekar örnám sem ég tel fela í sér mikil tækifæri í þeim kvika veruleika sem við búum við. Nám á að fylgja okkur í gegnum lífið – sveigjanlegt og faglegt til framtíðar,“ segir Logi Einarsson menningar,- nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Alþjóðleg viðmið
Um er að ræða þýdda og staðfærða útgáfu leiðarvísisins Micro-Credentials for Higher Educations, sem kom fyrst út á ensku árið 2024 og var dreift til allra íslenskra háskóla. Frumgerðin var unnin af starfshópi á vettvangi Bologna-samstarfsins. Íslenska útgáfan hefur verið staðfærð þannig að hún taki sem mest mið af íslenskum lögum, reglum og framkvæmd. Íslenska leiðarvísinum var dreift til allra háskóla á Íslandi á vormánuðum og er nú einnig birtur opinberlega.
Markmiðið er að leiðarvísirinn nýtist íslenskum háskólum og öðrum hagaðilum við að þróa örnám í samræmi við innlent regluverk og um leið alþjóðleg viðmið. Í leiðarvísinum er meðal annars fjallað um skilgreiningu örnáms, hvað ávinnst með slíku námi, hvernig unnt er að byggja það upp, hvernig skilgreina beri hæfniviðmið og vinnuframlag, sem og gæðavottun og viðurkenningu vottorða. Þar kemur fram að örnám geti stutt við sveigjanlegra námsframboð, aukið aðgengi að sí- og endurmenntun og mætt betur þörfum samfélags og vinnumarkaðar.
Leiðarvísinn má nálgast hér að neðan.