11 júní 2026
/
Mennta- og barnamálaráðuneytið
Símafrí í grunnskólum kynnt til umsagnar
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur birt í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum.
Markmiðið með reglugerðinni er að takmarka notkun síma og snjalltækja barna og ungmenna í grunnskólum ásamt því að samræma og setja skýrari reglur um notkunina. Um leið er markmið hennar að styðja við faglegt skólastarf og að búa nemendum náms- og félagsumhverfi sem styður við farsælt nám þeirra og vellíðan.
Reglurnar fela einkum í sér eftirfarandi:
- Notkun síma og snjalltækja sem ekki eru í eigu eða umsjá skóla er óheimil á skólatíma.
- Símar og snjalltæki í eigu eða umsjá skóla skal eingöngu nota í kennslufræðilegum tilgangi eða vegna stuðningsþarfa nemenda.
- Símar og snjalltæki sem ekki eru í eigu eða umsjá skólans skulu ekki vera aðgengileg nemendum á skólatíma og skulu þau geymd á fyrirfram ákveðnum stað sem skólinn ákveður og er ekki aðgengilegur nemendum, s.s. í þar til gerðum skápum, hólfum eða geymslukössum. Hver skóli skal móta sér reglur um hvar og hvernig skuli geyma tækin.
Við vinnslu reglugerðarinnar var lögð áhersla á samráð við helstu hagsmunaaðila. Til að mynda var haldin vinnustofa með börnum og ungmennum. Markmið hennar var að kalla eftir sjónarmiðum þeirra um notkun síma og snjalltækja í skóla- og frístundastarfi og móta með ráðherra þá reglugerð sem er nú birt til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Mennta- og barnamálaráðuneytið boðaði jafnframt skólaráð grunnskóla á þrjá kynningarfundi þar sem áformin voru kynnt og þátttakendur hvattir til að skila inn umsögn.
Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur alla sem láta sér þetta málefni varða að veita endurgjöf í Samráðsgátt stjórnvalda: