11 júní 2026

/

Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkja þarf yfirsýn, innviði og samþættingu þjónustu við börn

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið tekur undir helstu ábendingar Ríkisendurskoðunar um að styrkja þurfi yfirsýn, árangursmælingar, stafræna upplýsingamiðlun og þjónustuinnviði í þágu farsældar barna. Ábendingarnar eru mikilvægt innlegg í að efla framkvæmd laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og tryggja að börn og fjölskyldur fái þjónustu við hæfi þegar hennar er þörf. Ráðuneytið hefur þegar hafið og undirbúið aðgerðir á grundvelli niðurstaðnanna.

Farsældarlögin skapa mikilvægan ramma og lagagrundvöll fyrir samþættingu þjónustu við börn og samspil þjónustukerfa. Farsældarráð hafa tekið til starfa í öllum landshlutum á grundvelli laganna og sömuleiðis tengiliðir farsældar í skólum og heilsugæslum. Með farsældarráðunum er komin tenging milli allra þjónustuaðila við börn á hverju landsvæði og með tengiliðum farsældar er komin brú milli barnanna og þjónustuaðilana í gegnum bæði skóla og heilsugæslur.

Grunnstoðir innleiðingarinnar eru komnar í gagnið en árangur innleiðingar veltur m.a. á því að viðeigandi úrræði séu raunverulega til staðar í sveitarfélögum, heilbrigðiskerfi, skólakerfi og öðrum þjónustukerfum. Í því samhengi hefur ráðuneytið unnið að bættri yfirsýn yfir stöðu barna, meðal annars með mælaborði um farsæld barna sem fyrst var birt í apríl 2024. Mælaborðið byggir á gögnum um velferð og líðan barna og nýtir til þess upplýsingar frá opinberum stofnunum. Hins vegar þarf að setja frekari árangursmælikvarða og framkvæma reglulegt árangursmat og verður það gert.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er að finna mikilvægar ábendingar um annmarka við innleiðinguna. Meðal annars er réttilega bent á skort á því að þjónusta við börn tengist heilbrigðiskerfinu nægilega vel. Þetta hefur verið efst á baugi í mennta- og barnamálaráðuneytinu undanfarin misseri. Ráðuneytið hefur lagt fram ný barnaverndarlög þar sem ein helstu nýmælin eru að tengja saman barnavernd og heilbrigðisþjónustu. Lögin eru nú til meðferðar á Alþingi.

Þá voru tillögur starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda kynntar í mars síðastliðnum. Þar voru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við börn með vímuefnavanda. Sérstök áhersla var lögð á börn með flókinn og samsettan vanda sem þurfa sérhæfða og samþætta þjónustu. Í kjölfarið á því var skipaður sérstakur stýrihópur um framtíðarskipulag meðferðarúrræða fyrir börn með vímuefnavanda, með aðkomu forsætisráðuneytis, heilbrigðisráðuneytis og mennta- og barnamálaráðuneytis.

Í tillögu mennta- og barnamálaráðherra til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna fyrir árin 2026-2030 sem nú liggur fyrir á Alþingi eru fyrirhugaðar aðgerðir sem snúa að ábendingum Ríkisendurskoðunar. Þar má meðal annars nefna kortlagningu á aðgengi barna í viðkvæmri stöðu að samþættri þjónustu, yfirsýn yfir stigskipta þjónustu hjá ríki og sveitarfélögum, vinnu við biðlista og aðgerðir til að bæta aðgengi barna að þjónustu. Þá er gert ráð fyrir mati á fyrstu fimm árum innleiðingar farsældarlaganna, meðal annars til að styðja við ákvarðanatöku, forgangsröðun og mögulegar úrbætur.

Mennta- og barnamálaráðuneytið mun áfram vinna að því, í samstarfi við önnur ráðuneyti, sveitarfélög og stofnanir, að efla þjónustu við börn og fjölskyldur. Ábendingar Ríkisendurskoðunar eru mikilvægt og gagnlegt innlegg á þeirri vegferð sem ráðuneytið tekur alvarlega. Markmiðið er skýrt: að börn fái tímanlega, samfellda og viðeigandi þjónustu, óháð því hvar í kerfinu þörf þeirra kemur fyrst fram.